Enska úrvalsdeildin bannar Chelsea að semja við Paramount Plus Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. júní 2023 09:31 Chelsea verður með nýjan styrktaraðila framan á treyjum sínum á næstu leiktíð. Vísir/Getty Images Chelsea fær ekki að semja við streymisveituna Paramount Plus þar sem forráðamenn ensku úrvalsdeildar banna það. Paramount Plus átti að prýða treyjur félagsins á næstu leiktíð en nú stefnir í að það verði veðmálafyrirtæki.
Frá þessu er greint á vef The Athletic. Þar segir að enska úrvalsdeildin hafi stigið inn í og bannað Chelsea að semja við streymisveituna sem er á vegum kvikmyndarisans Paramount. Paramount Plus er þó ekki aðeins streymisveita af efni sem Paramount á. Veitan sýnir ekki efni frá Bretlandi en á sýningarréttinn á Meistaradeild Evrópu, ítölsku úrvalsdeildinni og efstu deild kvenna [NWSL] í Bandaríkjunum. Því töldu forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar að það færi illa í þá sem eiga sýningarréttinn á ensku úrvalsdeildinni ef eitt af stærri lið deildarinnar yrði með beinan samkeppnisaðila framan á treyjum sínum. Chelsea have been refused permission to sign a shirt sponsorship deal with Paramount Plus by the Premier League due to concerns it could cause problems with the league s broadcast partners.More from @liam_twomey https://t.co/TbDxsenu4P— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 18, 2023 Sem stendur er Chelsea í samningaviðræðum við veðmálafyrirtækið Stake.com þó enska úrvalsdeildin hafi í apríl samþykkt að banna veðmálafyrirtækjum að vera helsti styrktaraðili félaga. Þau mega þó enn vera á ermum búninga eða á skiltum í kringum völlinn. Bannið tekur gildi tímabilið 2026-27. Símafyrirtækið Three [3] var aðalstyrktaraðili Chelsea á síðasta tímabili. Sá samningur rennur út í sumar og því er Chelsea í leit að nýjum styrktaraðila til að vera framan á treyjum félagsins.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Enski boltinn Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti Fleiri fréttir Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Sjá meira