Hengill Ultra verður í beinni á Vísi Hengill Ultra 7. júní 2023 14:31 Enn er opið fyrir skráningar í hlaupið. Salomon Hengill Ultra utanvegahlaupið fer fram í Hveragerði dagana 9. og 10. júní. Sérfræðingar Vísis stýra maraþonútsendingu frá keppninni.
Rúmlega 800 þátttakendur eru skráðir til leiks en ennþá er opið fyrir skráningar í styttri vegalengdir hlaupsins. Boðið er upp á sex mismundandi vegalengdir frá 5 km og upp í 161 km og hægt er að hlaupa þrjár vegalengdir annars vegar að degi til eða að kvöldi til. Salomon Hengill Ultra er stærsti utanvega hlaupaviðburður ársins og verður hlaupið í beinni útsendingu á Vísi í ár. Á sama tíma fer fram heimsmeistararmótið í utanvegahlaupum í Innsbruck Stubai í Austurríki og verður útsendingin í beinu sambandi við liðstjóra landsliðsins þar og fær myndbönd og fréttir frá liðinu beint þaðan. Útsendingin verður því alger utanvegahlaupa veisla. Stjórnendur útsendingarinnar verða dagskrárgerðarfólkið Ósk Gunnarsdóttir og Garpur Ingason Elísabetarson og munu þau njóta atfylgis sérfræðinga bæði hérna heima og í Innsbruck Stubai. Tæknilegir stjórnendur útsendingarinnar eru tæknimenn frá Skjáskoti. Útsendingin hefst um leið og ræst er í lengstu vegalengdina sem er 100 mílur eða 161 kílómetri. Það hlaup er ræst föstudagsmorguninn 9. júní kl 8:00 og hefst útsendingin kl 07:00. Síðan verður gert hlé frá kl 9:00 til klukkan 17:00 en þá verður ræst í 106 kílómetra hlaupið og svo í framhaldi eru miðnætur útgáfur af 53 km, 26 km og 10 km hlaupunum ræst. Á laugardagsmorgun hefst útsending kl 07:00 og sent verður út allan daginn. Byrjað verður að ræsa kl. 8:00 um morguninn í 53 km hlaupið síðan eru 10 km ræstir kl 10:00 og svo 26 km kl 12:00 og að endingu 5 km klukkan 14:00. Fylgst verður með sterkustu hlaupurunum koma í mark koll af kolli fram eftir degi.
Heilsa Hlaup Mest lesið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira