Ballið búið í Háskólabíói Árni Sæberg skrifar 5. júní 2023 18:27 Kivkmyndahússrekstur legst af í Háskólabíói um mánaðarmótin. Vísir/Vilhelm Sena hefur ákveðið að segja upp leigusamningi sínum um rekstur kvikmyndahúss í Háskólabíói frá og með næstu mánaðamótum. Framkvæmdastjóri Smárabíós, sem var þar til nýverið framkvæmdastjóri kvikmyndasviðs Senu, segir að aðsóknin hafi hreinlega ekki verið næg.
Í frétt Ríkisútvarpsins, sem greindi fyrst frá málinu, segir að með lokun Háskólabíós ljúki 62 ára rekstri kvikmyndahúss í húsnæðinu. Konstantín Mikael Mikaelsson, framkvæmdastjóri Smárabíós, segir í samtali við Vísi að tap hafi verið á rekstri Háskólabíós frá því fyrir heimsfaraldur. Rekstur Smárabíós hafi hins vegar náð að rétta úr kútnum, og vel það, og því hafi verið ákveðið að Sena myndi einbeita sér að rekstri þess. Aðstaðan í Háskólabíó hafi verið þannig að hún mætti ekki kröfum viðskiptavina og því hafi þeir frekar sótt önnur kvikmyndahús. Spurður um áhrif lokunar Háskólabíós á framboð á kvikmyndamarkaði segir Konstantín Mikael ljóst að hún muni hafa nokkur áhrif á framboðshliðina. Kvikmyndir, sem eru minni í sníðum og hafa hingað til frekar verið sýndar í litlum sölum í Háskólabíói, muni ekki endilega flytjast yfir í Smárabíó. Þó hafi efling Bíó Paradísar undanfarin ár mætt þörfum þeirra sem vilja sjá slíkar kvikmyndir og hann vonist til þess að Bíó Paradís eflist enn frekar. Ríkisútvarpið hefur eftir Guðmundi R. Jónssyni, framkvæmdastjóra stjórnsýslu Háskóla Íslands, að uppi séu hugmyndir um að nýta Háskólabíó áfram undir tónleika, ráðstefnur, fundi og kennslu.
Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Tímamót Reykjavík Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Hvað veistu um... fugla? Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira