„Prófraun fyrir okkur og við stóðumst hana ekki“ Aron Guðmundsson skrifar 3. júní 2023 17:04 Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United hughreystir leikmann sinn, miðjumanninn Fred. Vísir/Getty Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var að vonum vonsvikinn með að lúta í lægra haldi gegn nágrönnum liðsins í Manchester City í úrslitaleik enska bikarsins á Wembley í dag.
Tvö mörk frá Ilkay Gundogan, miðjumanni Manchester City, sáu til þess að liðið heldur heim með enska bikarmeistaratitilinn og getur með sigri á Inter Milan í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í næstu viku, unnið þrennuna. Lokatölur á Wembley í dag urðu 2-1 Manchester City í vil. Bruno Fernandes skoraði mark Manchester United í leiknum. „Við erum niðurbrotnir og vonsviknir, að sjálfsögðu, en ég er stoltur af mínu liði,“ sagði Erik ten Hag í viðtali við BBC eftir tapið gegn Manchester City í úrslitaleiknum. „Við gerðum vel en fengum hins vegar á okkur tvö mjög auðveld mörk, en vorum með í leiknum. Þegar að þú spilar gegn Manchester City og færð ekki á þig mark úr opnum leik, þá er það stórt hrós á þitt lið en þegar að þú færð á þig svona mörk eins og í dag þá eru það mikil vonbrigði.“ Hann segir sína leikmenn hafa sýnt þrautseigju og karakter. „Við vitum að fyrir okkur er löng leið framundan en þessi reynsla mun bara gera okkur betri. Þetta var prófraun fyrir okkur, við stóðumst hana ekki en getum tekið marga jákvæða punkta frá þessum leik inn í næsta tímabil.“
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira