Logi Geirsson tekinn úr sambandi í beinni í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2023 10:01 Logi Geirsson var flottur að vanda í setti Seinni bylgjunnar í Mosfellsbænum í gær. Vísir/Hulda Margrét Logi Geirsson fékk að eiga lokaorðin í Seinni bylgjunni í gær og það er óhætt að segja að það hafi endað öðruvísi en búist var við.
Logi Geirsson var einn af þremur sérfræðingum Seinni bylgjunnar í mögnuðum oddaleik í Mosfellsbænum í gær. Haukarnir tryggðu sér þar sæti í lokaúrslitunum með 23-17 sigri á heimamönnum í Aftureldingu og fyrsti leikurinn á móti ÍBV í úrslitaeinvíginu verður úti í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Seinni bylgjan fór yfir leikinn í gærkvöldi og í lok þáttar fékk Logi Geirsson síðan tækifæri til að kveðja í stað umsjónarmannsins Stefáns Árna Pálssonar sem gerir það vanalega. „Heyrðu, ég ætla að enda þessa útsendingu með því að ég ætla að láta þig kveðja. Þú ætlaðir að gera það síðasta en ég ætla að leyfa þér að gera það núna,“ sagði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar, og benti á Loga Geirsson. „Allir á Íslandi. Er ég mættur?“ sagði Logi og fullvissaði sig um að myndavélin væri á honum. „Fylgist með þessu úrslitaeinvígi. Þetta verður eitthvað rosalegt og Haukar eru ekki að fara gefa neitt eftir. Munið þið það,“ sagði Logi Geirsson og ætlaði líklega að bæta kveðju við. Af því varð ekki. Skjárinn varð svartur því starfsmaður íþróttahússins hafði hreinlega tekið Loga og alla útsendingu Seinni bylgjunnar úr sambandi. Það má sjá þennan skrautlega endi á Seinni bylgjunni hér fyrir neðan. Klippa: Logi Geirsson tekinn úr sambandi
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Fleiri fréttir Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sjá meira