Spjallað um hönnun – „Mikilvægt að þægindi og fegurð komi saman“ segir Viktoría Hrund Módern 21. apríl 2023 14:41 Viktoría Hrund Kjartansdóttir, sem er með BA gráðu í arkitektúr, mætti í hönnunarspjall til Úlfars Finsen í versluninni Módern. Undanfarin ár hefur Viktoría Hrund Kjartansdóttir aðstoðað fólk og eigendur fyrirtækja við ýmsar spennandi breytingar á heimilum og skrifstofuhúsnæði.
Viktoría Hrund útskrifaðist árið 2018 með BA gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands og segir miklu máli skipta að hlusta vel á fólk og greina þarfir þess og óskir. Viktoría Hrund mætti í hönnunarspjall til Úlfars Finsen í versluninni Módern. Viktoría segir mikilvægt að hugsa í skala þegar hún ráðleggur um breytingar heima fyrir. Hvort sem verið sé að færa sig úr smærri eign í stærri eða öfugt er mikilvægt að húsgögn passi inn í nýja rýmið en það er ekki alltaf þannig að húsgögn úr fyrri búslóð passi í nýtt rými. Viktoría hannar rými fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Groundpiece sófinn frá Flexform og Andersen legubekkir frá Minotti gegna hér stóru hlutverki. Skoða rýmið sem er mest notað Mikilvægt er að framkvæma breytingar í tengslum við nýtt húsnæði í nokkrum skrefum. Þá er gott að hugsa fram á við og velta fyrir sér hvaða húsgögn eru að fara að fylgja manni í langan tíma í stað þess að einblína á skammtímalausnir. Við val á húsgögnum í nýja eign skiptir miklu máli í upphafi að skoða það rými sem er mest notað en það er mjög persónubundið. Hjá sumum er til dæmis borðstofan mest notuð sem er oft miðpunktur heimilisins. „Þá mundi ég klárlega byrja á því að kaupa góða stóla og halda áfram út frá því og leyfa þessu rýmum sem eru minna notuð mæta afgangi.“ Þegar kemur að stofunni segir Viktoría Hrund að góður sófi skipti miklu máli og hægindastóll eða standlampi. Þegar sá kjarni er kominn sé punkturinn yfir i-ið klárlega góð motta. „Það er svolítið lokaskrefið og þá ertu búinn að ramma rýmið endanlega inn.“ Þegar húsgögn eru valin í stofuna er kjarninn góður sófi og jafnvel hægindastóll eða standlampi. Viktoría segist vera algjör „sökker“ fyrir seventies húsgögnum og finnst skemmtiegt að sjá kannski eitt slíkt í stofunni. Mjúkar línur eru áberandi frá þessum tíma, mikið af andstæðum og djúpum litum. Torii hægindastóllinn frá Minotti talar mikið til Viktoríu. Við val á efnum er mikilvægt að blanda ólíkum efnum og áklæðum þannig að rýmið verði ekki flatt segir Viktoría. „Mér finnst gott að setja öll efnin fyrir framan mig og skoða hvort það sé veikur hlekkur sé til staðar í pallettunni. Þannig getum við skipt út ef þarf og nostrað við.“ Viktoría blandar saman mismunandi efnum, áklæðum og áferðum sem saman gefa ákveðna vídd í rýmið. Úlfar Finsen, eigandi Módern, tekur undir orð Viktoríu en Módern vinnur náið með arkitektum og hönnuðum að fjölbreyttum verkefnum fyrir bæði heimili og skrifstofur. „Við verðum að vilja nota þessi húsgögn sem við fjárfestum í og að þau séu praktísk og endist vel.“ Fallegt rými hannað af Viktoríu. Campo sófinn frá Wendelbo tryggir notalegar og þægilegar stundir. Heimsþekkt vörumerki hjá Módern Verslunin Módern býður upp á hágæða hönnun í húsgögnum, lýsingu og gjafavöru frá heimsþekktum hönnuðum. Þar er hægt að fá húsgögn sem eru framleidd eftir óskum og þörfum viðskiptavinarins og lögð er höfuðáhersla á persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf. „Húsgögnin okkar eru lang flest umhverfisvottuð og smíðuð til að endast og endast. Vörumerkin sem við bjóðum eru þekkt um allan heim meðal hönnuða og arkitekta fyrir framúrstefnulega hönnun og óviðjafnanleg gæði,“ segir Úlfar.
Hús og heimili Tíska og hönnun Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Heimatilbúið „corny“ Lífið Fann ástina í örlagaríkum kjól Tíska og hönnun Centro-hjónin selja Beverly Hills-villuna Lífið Eitt rými sem má alls ekki mynda í Alþingishúsinu Lífið Keeping Up Appearances-leikkona látin Lífið Fleiri fréttir Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira