Guðmundur Ágúst lauk keppni í 48. sæti Smári Jökull Jónsson skrifar 26. febrúar 2023 09:31 Guðmundur Ágúst ásamt Þjóðverjanum Yannik Paul sem er í öðru sæti mótsins. Vísir/Getty Guðmundur Ágúst Kristjánsson lauk keppni í morgun á Hero Indian Open mótinu í golfi. Guðmundur Ágúst lauk keppni í 48.-53. sæti eftir að hafa verið í öðru sæti eftir fyrstu tvo hringina.
Guðmundur Ágúst hóf mótið í Indlandi frábærlega. Hann lék fyrstu tvo hringina á fimm höggum undir pari samtals og var í öðru sæti mótsins að þeim loknum. Hann lenti hins vegar í vandræðum í gær þegar hann lék þriðja hringinn á fimm höggum yfir pari og var fyrir síðasta hringinn í dag í 28.-36.mótsins en hans besti árangur hans á DP-mótaröðinni fyrir mótið í Indlandi var 49.sæti á Singapore Classic fyrr í þessum mánuði. Guðmundur Ágúst átti sömuleiðis frekar erfiðan síðasta hring. Hann náði sér í fjóra skolla á fyrstu átta holunum en fyrsti fuglinn kom á 13.braut en síðan annar skolli á þeirri 14. Á átjándu og síðustu holunni spilaði Guðmundur Ágúst á tveimur höggum yfir pari og lauk því keppni í dag á sex höggum yfir pari og sex höggum yfir pari samtals. Guðmundur Ágúst keppir næst á Magical Kenya Open mótinu sem hefst eftir tíu daga.
Golf Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira