Vanda og Klara samtals með tæplega 37 milljónir í árslaun Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. febrúar 2023 09:01 Vanda Sigurgeirsdóttir og Klara Bjartmarz, formaður og framkvæmdastjóri KSÍ. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Vanda Sigurgeirsdóttir og Klara Bjartmarz, formaður og framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, voru samtals með tæplega 37 milljónir króna í laun árið 2022. Þetta kemur fram í árskýrslu sambandsins.
Á föstudaginn var birti KSÍ ársskýrslu fyrir árið 2022. Í ársskýrslunni er stiklað á stóru um árið sem leið í máli og myndum og fjallað um mótahald, landslið, fræðslumál, samfélagsmál, fjármál og ýmislegt annað. Þar kom fram að sambandið hefði hagnast um 157 milljónir króna á árinu 2022. Þar kom einnig fram að formaður og framkvæmdastjóri sambandsins væru samtals með 37 milljónir króna í árslaun. Í skýrslunni segir: „Laun og bifreiðastyrkur til formanns námu um 19,5 milljónir króna og til framkvæmdastjóra um 17,2 milljónir króna.“ Er þetta rúmlega tveimur milljónum minna en sambandið eyddi í sömu kostnaðarliði á síðasta ári. „Laun og bifreiðastyrkur til núverandi formanns námu um 4,4 milljónum króna, til framkvæmdastjóra um 16,2 milljónum króna og laun og launauppgjör við fyrrverandi formann um 18,6 milljónir króna,“ segir í ársskýrslu sambandsins fyrir árið 2021. Launagjöld á skrifstofu sambandsins hækkuðu nokkuð milli ára. Voru þau nú rúmar 256 milljónir miðað við 230 milljónir árið 2021. Skýrist það að mörgu leyti af lögbundnum launahækkunum og þar sem ákveðið var að greiða starfstólki bónus vegna álags tengdu Evrópumótinu. Skýrsluna í heild sinni má sjá hér.
Fótbolti Íslenski boltinn KSÍ Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Snævar setti heimsmet Sport Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira