Mikla vatnavexti gerði í leysingum á vestanverðu landinu í gær. Í Svartárdal í Húnabyggð flæddi Svartá yfir bakka sína í krapaflóði í gærkvöldi.
Jakob Sigurjónsson, bóndi á Hóli, segir við Vísi að líklega hafi flóðið hafist á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hann áætlar að vatnshæðin í ánni kunni að hafa verið fjórum til sex metrum hærri en vanalega og vatn flætt víða þar sem flatt er við ána. Það hafi valdið gríðarlegum skemmdum á túnum og girðingum í nær öllum dalnum.
Vatn flæddi yfir veginn um dalinn en hann var opnaður aftur í dag. Jakob segir að gríðarlegar skemmdir hafi orðið á veginum. Innan við Hól sé alls ekki fólksbílafært.
„Það eru bara djúp skörð í veginum, það er bara rétt búið að ryðja ofan í þau til að það sé hægt að skrönglast í neyð,“ segir Jakob.

Einhverjir dagar í að fært verði að bænum
Innar í dalnum skemmdist brú við bæinn Barkarstaði þannig að fjölskyldan sem þar býr kemst hvorki lönd né strönd.
Víðir Már Gíslason, bóndi á Barkarstöðum, segist hafa heyrt miklar drunur í gærkvöldi en að hann hafi ekki áttað sig á hvað hefðist gerst enda niðamyrkur. Það var ekki fyrr en hann fékk símtal frá nágranna sem sagði honum að brúin væri gengin til sem hann fór og kannaði aðstæður.
„Hún hefur farið af stöplunum öðru megin, hún er bara bogin. Brúin er ónýt, það liggur alveg ljóst fyrir,“ segir Víðir Már sem kemst þó ekki sjálfur að brúnni þar sem áin rennur nú yfir veginn hans megin brúarinnar.
Starfsmenn Vegagerðarinnar meta nú hvernig sé hægt að tengja bæinn aftur við umheiminn en Víðir Már segir að það eigi eftir að taka einhverja daga.

Skólabíllinn fastur á bænum
Fjögur af fimm börnum Víðis Más og konu hans, Lindu Carlsson, á Barkarstöðum eru heima en bóndinn hefur ekki miklar áhyggjur af einangruninni.
„Við erum vel birg svo þetta er allt í lagi eins og er. Það væsir ekkert um okkur,“ segir Víðir Már.
Fjölskyldan er með sauðfjárbúskap en auk þess ekur Víðir Már skólabílnum í sveitinni. Sá er innlyksa á bænum með fjölskyldunni. Börnin í sveitinni þurfa þó ekki að óttast að komast ekki skólann af þeim sökum.
„Ég er búinn að leysa það. Það er annar sem keyrir það fyrir mig. Það eru bara börnin mín sem eru föst heima,“ segir hann.

Mesta flóðið í allt að aldarfjórðung
Annars staðar í Svartárdal var áin að mestu leyti gengin aftur í sinn hefðbundna farveg. Jakob á Hóli, sem hefur búið í dalnum frá því að hann fæddist fyrir rúmum fimmtíu árum, lýsir flóðinu sem meira en krapaflóði. Allt að tveggja metra þykkir jakar liggi nú á túnum bænda ásamt grjótruðningi. Flóðið sé það mesta sem hann hafi séð í tuttugu til tuttugu og fimm ár.
Bændur eigi gríðarlega mikið hreinsunarstarf fyrir höndum við að hreinsa grjót og girðingardræsur sem liggi um allt meðfram ánni.
„Það er ekkert hægt að huga að þessu fyrr en klaki fer úr jörð og ruðningur uppi á túnum bráðnar. Það er ekkert venjulegt tæki sem ræður við að ryðja þessu í burtu. Það er lítið hægt að gera fyrr en í júní nema það verði einstaklega gott vorið,“ segir Jakob.