Útfærsla á atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu Kristófer Már Maronsson skrifar 14. febrúar 2023 08:30 Kjaradeila Eflingar og SA hefur líklega ekki farið fram hjá neinum undanfarnar vikur og má gera ráð fyrir því að hún sé vinsælt umræðuefni á kaffistofum landsins. Formaður Eflingar barði sér reglulega á brjóst fyrir skömmu að vera lýðræðislega kjörin og hélt greinilega mikið upp á lýðræðið þangað til nýlega. Ég veit ekki hvort við myndum tala um lýðræðislega kjörna ríkisstjórn ef samtals 7,8% atkvæðabærra landsmanna hefðu kosið ríkisstjórnarflokkana - en það er annað mál. Allt tal Sólveigar Önnu um lýðræði flaug út um gluggann þegar kom að því að leyfa félagsmönnum Eflingar að kjósa um þann kjarasamning sem önnur félög hafa samþykkt með góðum meirihluta. Þó að samninganefndir annarra stéttarfélaga hafi ekki endilega verið ánægðar með þann kjarasamning sem í boði var, þá sáu þær a.m.k. sóma sinn í að leyfa öllum félagsmönnum að kjósa um samninginn áður en lengra var haldið. Vilji félagsmanna í öllum þessum félögum hefur verið skýr. Fyrir stuttu lagði ríkissáttasemjari svo fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og SA, en Efling hefur hingað til neitað að afhenda kjörskrá. Sú ákvörðun Eflingar virðist hafa verið réttmæt samkvæmt úrskurði Landsréttar í gær, en það mætti halda af umræðunni að miðlunartillagan hafi verið ólögmæt og Eflingu bæri ekki að láta félagsmenn kjósa um miðlunartillöguna. Það er fjarri sannleikanum. Í úrskurði Landsréttar segir: „Af framangreindum ákvæðum laga nr. 80/1938 og lögskýringargögnum verður ótvírætt ráðið að varnaraðili [ríkissáttasemjari] hafi lögbundinn rétt til að taka ákvörðun um að atkvæðagreiðsla skuli fara fram um miðlunartillögu sem hann hefur sett fram á grundvelli 1. mgr. 27. gr. laganna sem og ákveða tilhögun og framkvæmd hennar.” Sáttasemjara er þó ekki heimilt að krefjast þess að aðilar afhendi honum kjörskrá, þó að það hafi upphaflega verið í frumvarpi sem varð að lögum nr. 33/1978. Að ósk ASÍ var ákvæðið: „Áður en atkvgr. hefst skal afhenda sáttasemjara kjörskrá. Félagsdómur dæmir um kjörskrárdeilur.” fellt úr frumvarpinu. Ég ætla ekki að reyna að segja að ég hafi reynslu af því hvernig aðstæður voru árið 1978, þegar foreldrar mínir voru á leikskólaaldri, en ég get upplýst lesendur um það að Internetið kom ekki fyrr en 5 árum seinna og aðstæður því allt öðruvísi en í dag. Hvernig á þá að framkvæma atkvæðagreiðsluna? Í téðum úrskurði er alveg skýrt að ríkissáttasemjari hefur heimild til að taka ákvörðun um atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu. Ég vitna aftur í úrskurðinn: „Í 2. málsl. 3. mgr. er hins vegar ákvæði sem felur í sér tilbrigði við meginregluna en ekki sjálfstæða tilhögun atkvæðagreiðslu. Auk kjörfundaratkvæðagreiðslu er ríkissáttasemjara heimilað að efna til atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á tilteknum stöðum eða svæðum. Er þá unnt að nýta hvers konar tækni til utankjörfundaratkvæðagreiðslu hvar sem er í lögsögu íslenska ríkisins án þess að öllum félagsmönnum, sem miðlunartillagan tekur til, sé gert að mæta á kjörfund. Gæti þetta tilbrigði t.d. átt við um bifreiðarstjóra og sjómenn. Sem dæmi má nefna að bréfsími eða tölvutækni sé notuð í þessu sambandi. Þó verður að árétta að ávallt gildir í hvívetna sú grunnregla 5. málsl. 3. mgr. um að atkvæðagreiðsla skuli vera skrifleg og leynileg. Því verður að tryggja að hæfur aðili, svo sem sýslumaður eða löglærður fulltrúi hans eða skipstjóri, sé tilnefndur hverju sinni af ríkissáttasemjara til þess að votta að atkvæðisbær félagsmaður hafi gert grein fyrir sér og greitt leynilega atkvæði að honum nærstöddum á til þess gerða ómerkta atkvæðaseðla. Atkvæðin eru síðan send nafnlaus með tiltækri tækni á skrifstofu ríkissáttasemjara sem sér um að þau fari strax í kjörkassa þegar sannreynt hefur verið að atkvæðin séu send frá til þess bærum aðila.” Af því sem við höfum lært þá má ríkissáttasemjari ekki krefjast þess að kjörskráin sé send Advania en hann getur kveðið á um atkvæðagreiðslu á kjörfundi eða utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem má t.d. framkvæma með tölvutækni. Hún skal þó vera skrifleg og leynileg og því ber ríkissáttasemjara að tilnefna hæfan aðila til þess að votta að atkvæðabær félagsmaður hafi gert grein fyrir sér og greitt leynilega atkvæði að honum nærstöddum á til þess gerða ómerkta atkvæðaseðla. Það liggur fyrir að Advania er hvorki sýslumaður, löglærður fulltrúi né skipstjóri og því líklega ekki hæfur aðili samkvæmt lögum til að votta um kosninguna. Dæmi um útfærslur Nú hefur ríkissáttasemjari lagt til við félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann stígi til hliðar þar sem að hann segir ekki hægt að framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ef annar hvor aðilinn neitar að afhenda kjörgögn til þess að það geti gerst. Af úrskurði Landsréttar virðist alveg vera hægt að framkvæma atkvæðagreiðsluna, ríkissáttasemjari má bara ekki hafa puttana mikið í henni. Það er því engin ástæða fyrir Aðalstein að stíga til hliðar og eru hér hugmyndir um útfærslur á atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu: Útfærsla 1: Deiluaðilar skulu halda rafræna kosningu um miðlunartillöguna hvor í sínu lagi fyrir félagsmenn sína. Kosning skal fara fram frá kl. 10:00 fimmtudaginn 16. febrúar og ljúka kl. 18:00 sunnudaginn 19. febrúar. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu skal votta að atkvæðisbærir félagsmenn hafi auðkennt sig með rafrænum skilríkjum og gert grein fyrir atkvæði sínu leynilega á ómerkta rafræna kjörseðla. Atkvæðin skulu send nafnlaus með tiltækri tækni á skrifstofu ríkissáttasemjara sem sér um að þau fari strax í kjörkassa þegar sannreynt hefur verið af sýslumanni að atkvæðin séu send frá til þess bærum aðila. Úfærsla 2: Deiluaðilar skulu boða félagsmenn sína til kjörfundar í húsakynnum sínum og bera undir þá miðlunartillögu til atkvæðagreiðslu. Skal miðlunartillögu svarað játandi eða neitandi í skriflegri og leynilegri atkvæðagreiðslu. Kjörfundur skal standa yfir frá kl. 10:00 fimmtudaginn 16. febrúar og ljúka kl. 18:00 sunnudaginn 19. febrúar. Heimilt er að gera hlé á kjörfundi frá kl 20:00 að kvöldi hvers fundardags til kl 10:00 að morgni næsta fundardags. Fulltrúum aðila vinnudeilu er heimilt að vera við atkvæðagreiðslu og talningu atkvæða eftir því sem við verður komið á eigin kostnað og ábyrgð svo sem almennt tíðkast í lýðræðislegum kosningum. Hvað ef Efling neitar að halda kosningu? Ef Efling neitar að halda kosningu hlýtur að vera hægt að fara dómstólaleiðina aftur til þess að knýja fram kosninguna, enda segir skv. 2. mgr. 29. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur: „Miðlunartillaga skal borin undir atkvæði við atkvæðagreiðslu allra atkvæðisbærra aðila eins og sáttasemjari gekk frá henni og henni svarað játandi eða neitandi.” Til þess að miðlunartillaga teljist felld þarf skv. 31. gr. meira en helmingur greiddra atkvæða að vera á móti henni og mótatkvæði séu fleiri en fjórðungur atkvæða samkvæmt atkvæða- eða félagaskrá. Í frumvarpi var upphaflega lagt til að meira en þriðjungur atkvæða þyrfti að vera á móti tillögunni með vísan í lýðræði, en breytingar voru gerðar í þá veru að það væri fjórðungur. Ef Efling heldur ekki kosningu eins og ríkissáttasemjari ákveður, þá hlýtur tillagan að teljast samþykkt þar sem ákvæðum 31. gr. er ekki fullnægt. Uppgjöf ríkissáttasemjara er ekki ásættanleg Að ríkissáttasemjari gefist upp við mótlæti kann ekki góðri lukku að stýra. Þó að dæmt hafi verið gegn honum í einu útfærsluatriði atkvæðagreiðslunnar um miðlunartillögu þá virðist mjög skýrt að miðlunartillagan er réttmæt. Það er einnig fullkomlega réttlætanlegt að gefa aðilum í sitthvoru lagi tækifæri á að kjósa um sambærilegan kjarasamning og félagsmenn annarra stéttarfélaga hafa samþykkt. Ef ríkissáttasemjari telur rétt að stíga til hliðar í erfiðum deilum þar sem persóna hans er dregin í efa er líklega rétt að hann stígi alfarið til hliðar og annar verði skipaður í hans stað. Annars er skapað það hættulega fordæmi að auðvelt sé að fá nýjan sáttasemjara ef sá sem situr við borðið er ekki deiluaðilum að skapi. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristófer Már Maronsson Kjaraviðræður 2022-23 Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun