Sigur og tap hjá Rómarliðunum Smári Jökull Jónsson skrifar 4. janúar 2023 17:33 Stuðningsmenn Roma með áhugaverðan fána í stúkunni í dag til stuðnings þjálfaranum Jose Mourinho. Vísir/Getty Roma jafnaði nágranna sína í Lazio að stigum þegar liðið lagði Bologna í Serie A deildinni á Ítalíu í dag. Lazio tapaði á sama tíma fyrir Lecce eftir að hafa haft forystuna í hálfleik.
Fyrir leikinn í kvöld var Lazio í fjórða sæti deildarinnar en Roma í sjöunda sætinu, þremur stigum á eftir, en fjögur efstu lið deildarinnar ná sæti í Meistaradeildinni að ári. Roma tók á móti Bolgona á heimavelli sínum Stadio Olimpico og voru ekki lengi að taka forystuna þegar Lorenzo Pellegrini skoraði úr vítaspyrnu strax á sjöttu mínútu leiksins. Staðan í hálfleik var 1-0 en í síðari hálfleiknum þurfti Paulo Dybala meðal annars að fara af velli hjá Roma vegna meiðsla. Lærisveinar Jose Mourinho héldu þó út og unnu góðan 1-0 sigur. Á sama tíma lék hitt Rómarliðið, Lazio, á útivelli gegn Lecce. Lazio komst yfir á 14. mínútu þegar Ciro Immobile skoraði en í síðari hálfleiknum svöruðu heimamenn með tveimur mörkum. Fyrst skoraði hinn brasilíski Gabriel Strefezza á 57.mínútu og Lorenzo Colombo skoraði sigurmarkið þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Lokatölur 2-1 og Lecce þar með komið upp í tólfta sæti deildarinnar. Fjórir leikir eru á dagskrá í Serie A í kvöld og þar á meðal stórleikur Inter og Napoli.
Ítalski boltinn Mest lesið Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Sjá meira