Endastopp Strætó Agnar Freyr Stefánsson skrifar 27. október 2022 13:32 Næsta stopp er; NÆTURSTRÆTÓ Ég stend í Hafnarfirði og bíð eftir Ásnum. Síðan ég flutti heim frá Hollandi hef ég notað strætó daglega. Það varð ósjálfrátt vani að nota almenningssamgöngur í Hollandi því það var ódýrt, hagstætt og áreiðanlegt. Á þeim stuttu 3 mánuðum sem ég hef verið á Íslandi hefur Strætó hækkað í verði, hætt ferðum fyrr, skert þjónustu og verst af öllu - hætt með næturstrætó. Ásinn kemur loksins og ég stekk í hann og nota Klapp kortið mitt til að borga, ég hafði nýlega festi kaupum á árskorti þar sem verðið var að fara hækka (aftur) ég legg kortið á skannann og upp kemur gulur kall “Villa kom upp í kerfi talið við bílstjórna” ég lít á hann og bílstjórinn hleypir mér inn. Ég sest í gluggasæti og set heyrnartól í eyrum og hlusta á útvarpið, þar er Sindri Freyr Ásgeirsson að tala um skerðingu næturstrætó. “...við myndum aldrei loka Miklubrautinni á nóttunni því hún er svo lítið notuð”. Það er svona hugsunarháttur sem ég vildi að væri ríkjandi á Íslandi þegar talað væri um almenningssamgöngur. Því mér finnst ekkert sjálfsagðara en að hafa strætó gangandi á nóttunni fyrir fólk sem er að vinna frameftir eða er að njóta lífsins og vill koma sér ódýrt og öruggt heim. Í stað þess að greiða 15.000kr fyrir leigubíl eða brjóta lög og jafnvel andlitið á Hoppi. Í frétt Stundarinnar var haft eftir framkvæmdastjóri Strætó að þau miðuðu við 50 manns í hverjum næturstrætó. Ég tel sætin sem eru fyrir framan og aftan mig og tel 43 sæti. Svo Strætó var að búast við í hið minnsta 42 stútfullum strætisvögnum hverja helgi í 14 vikur, samhliða því að innleiða nýtt miðakerfi sem var gallað og ónothæft. Þessar tölur eru svo óraunhæfar að mætti halda að Strætó hannaði kerfið svo það falli en geta samt sagt að þau ‘reyndu’. Ég lít í símann og fer á Twitter þar sem fólk segist ekki hafa nýtt sér næturstrætó því appið og posinn virkuðu ekki, óljóst hvar strætó stoppaði og að seinasti næturstrætóinn fór klukkutíma áður en bærinn lokaði. Ekkert sem Strætó ákvað að lagfæra áður en það felldi niður næturstrætóinn alfarið. Næsta stopp er; VERÐHÆKKUN Það fer ekki framhjá neinum að Strætó er búin að skerða þjónustu sína jafnt of þétt í áratugi því öll þau fríðindi sem þau bjóða upp á samsvara ekki kostnaði. Ég hugsa oft þegar ég lít út um gluggann á umferðina hvort skerðing Strætó skili í raun árangri, eða hvort þau missi bara fleiri farþega jafnvel tilvonandi farþega. Þegar ég lít yfir strætóinn sé ég krakka, unglinga, innflytjendur, fólk sem á ekki efni á að reka bíl og fólk sem trúir á almenningssamgöngur og bíllausan lífsstíl, hvar eru túristarnir? Jú í FlyBus rútunni við hliðin á Strætónum. Burt sé frá því þá er þetta fólkið sem notar strætó, sem þarf strætó og sem vill strætó. Sjaldan sér maður þingmenn, borgar- og bæjarstjórnendur, jafnvel ráðherra nota strætó fólkið sem stjórnar strætó. Það er blint á þessa mikilvægu þjónustu, horfa niður til hennar og forðast hana eins og heitan eldinn. Ef þú notar ekki þjónustuna sem þú stjórnar þá veistu ekki hvað þarf í raun að gera. Hvað geta þingmenn og borgarstjórnendur gert fyrir Strætó svo þau mundu vilji nota Strætó? Næsta stopp er; EINKAVÆÐING Að færa rekstur akstursleiða Strætó til einkaaðila væri eins og að leigja herbergi spítalans til einkaaðila því rekstur þess samsvarar ekki kostnaði eða leigja út götur til einkaaðila því vegagerðin nær ekki að viðhalda götunum því þær samsvara ekki kostnaði. Þegar rekið er almenningsþjónustu á hún að vera rekin af ríki, borg og bæum. Einkavæðing á hvaða mælikvarða sem er getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar sem strætófarþegar sitja uppi með. Fólkið sem á hvað minnst milli handanna. Stjórnendur Strætó vilja leggja út leiðir til einkaaðila svo fólk eins og Hópbílar og Kynnisferðir sjái um aksturinn og þá fá Strætó “hagstætt verð”. Heldur Strætó virkilega að Hópferðir og Kynnisferðir bjóði upp á hagstætt verð? Samkeppnisaðilarnir, einkarekin fyrirtæki knúin áfram með gróða í hug. Hvað með Reykjavík - Keflavíkur leiðina? Kynnisferðir (e. FlyBus) eru nú þegar með þá leið og rukkar 3.499 kr fyrir sætið, ég efast að þau myndu bjóða “hagstætt verð” fyrir strætó til að leggja við völlinn til að sækja túristana fyrir 550 kr. Hvað myndi taka Hópbíla og Kynnisferðir langan tíma til að rafvæða flotann sinn ef einhvern tímann? Myndi það ekki enda að ríkið “styrki” þau fyrirtæki til að rafvæða flotann? Einkavæðing er bara skammtíma lausn á vandamál sem þarf langtímalausn. Næsta stopp er; PENINGAR Frægt er orðið að ríkið dældi 9 milljörðum í að niðurgreiða Teslur fyrir þau sem ætluðu hvort sem er að kaupa sér Teslur, en aðeins 1 milljarð í Strætó, kerfi sem er að blæða út og er byrjað að leita hjálpar til einkavæðingar og kapítalisma til að mögulega lifa af. Ég í raun get ekki kennt Strætó um, það er jafn mikið fórnarlamb og farþegarnir. Allar kröfur Strætó falla í grýttan jarðveg og hefur borgin og bæirnir í kring látið með Strætó eins og heita kartöflu sem enginn vill taka ábyrgð á. Það er lítill vilji til að efla þjónustuna þegar stjórnin keyrir til og frá stjórnarfundum en eina samkomulagið virðist vera að hækka verð og skerða þjónustu. Ríkið hefur lítið tjáð sig um vandamál Strætó og er þögul eins og gröfin en fram kemur í ársskýrslu Strætó frá 2021 að framlag Ríkisins hafi verið “…774 m.kr undir áætlun…” á sama tíma og rekstrarniðurstaða Strætó árið 2021 “...var neikvæð um 439 m.kr…” - hreint aðgerðarleysi. Endastopp; STRÆTÓ Það er að koma að enda stoppinu, Strætó eins og við þekkjum það er að blæða út og er Ríkið, Borgin og Bæirnir allir að leyfa því að gerast. Það sem kemur í staðinn veit enginn. Ég hef rætt við marga í kringum mig um strætó, næturstrætó, klappið og reksturinn. Margir telja þetta tapað dæmi og ætti orka mín að fara eitthvert annað. Þetta er mitt seinasta kall á hjálp en ég vona að úr öskum Strætó rísi frábær Borgarlína en með þessu áframhaldi og viðhorfi til almenningssamganga mun Borgarlínan lenda í sama farvegi og eflaust verða aðeins útópísk goðsögn á meðan við sitjum föst í morgunumferðinni á leiðinni í vinnuna. Einn daginn vona ég að hugsunarháttur fólks breytist úr ‘að þurfa nota strætó’ í ‘að vilja nota strætó’. Höfundur vill nota strætó. Heimildir https://stundin.is/grein/16012/ https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/almennar-frettir/samgongur-og-rettlat-umskipti-gjaldskrarhaekkanir-hja-straeto-en-27-milljardar-i-rafbila/ https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunutvarpid/23822/7grrh4/naeturstraeto https://straeto.is/media/2022/03/straetobs_arsreikningur_31122021_undirritad.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Strætó Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun