Með fimm kíló af amfetamíni í frystikistu á heimili sínu Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2022 11:07 Maðurinn játaði brot sín afdráttarlaust fyrir dómi, en samkvæmt sakarvottorði hefur hann ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann, Garðar Ingvar Þormar, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot og vopnalagabrot.
Í ákæru segir að lögregla hafi fundið mikið magn fíkniefna – um 4,7 kíló af amfetamíni, um lítra af amfetamínvökva, auk hass og kannabis – í frystikistu í geymslu á heimili mannsins í Hafnarfirði í mars 2021. Þá var maðurinn jafnframt ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tvö sverð og útdraganlega kylfu sem lögregla fann við leit í íbúðinni. Auk þess fundust tvö handjárn, lásbogi og gasskotvopn. Maðurinn játaði brot sín afdráttarlaust fyrir dómi, en samkvæmt sakarvottorði hefur hann ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. „Um er að ræða talsvert magn fíkniefna af miklum styrkleika, sem ákærði hafði í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni sem litið verður til við ákvörðun refsingar. […] Hins vegar benda gögn málsins til þess að ákærði hafi ekki verið eigandi efnanna utan þeirra sem eru í neysluskömmtum,“ segir í dómnum. Var það einnig metið til mildunar að maðurinn hafi farið í meðferð vegna áfengis- og vímuefnavanda eftir brotið til að leitast við að koma lífi sínu á réttan kjöl og þótti hæfileg refsing þrjú og hálft ár í fangelsi. Fram kemur að maðurinn hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins í um tíu daga eftir að hann var handtekinn í mars 2021 og kemur sá tími til frádráttar refsingunni. Manninum er jafnframt gert að greiða þóknun til skipaðs verjanda og annan sakarkostnað, alls um milljón krónur.
Dómsmál Hafnarfjörður Fíkniefnabrot Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira