Útlit fyrir að Ronaldo byrji gegn Man. City Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2022 14:30 Cristiano Ronaldo fagnar eina marki sínu til þessa á leiktíðinni með Manchester United, gegn Sheriff í síðasta leik fyrir landsleikjahléið. Getty/Oleg Bilsagaev Útlit er fyrir að Cristiano Ronaldo verði í byrjunarliði Manchester United, í fyrsta sinn í sjö vikur, þegar liðið mætir meisturum Manchester City í stórleik um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
The Telegraph fjallar um þetta og bendir á að hvorki Marcus Rashford né Anthony Martial hafi getað æft af fullum krafti í vikunni en þeir eru að komast af stað eftir meiðsli. Því er óvíst hvort þeir geti mætt City á sunnudag. Ljóst er hins vegar að fyrirliði United, Harry Maguire, kemur til með að missa alveg af leiknum vegna vöðvameiðslanna sem hann varð fyrir í 3-3 jafntefli Englands við Þýskaland á mánudaginn. Hann hafði þó misst sæti sitt í byrjunarliði United fyrir landsleikjahléið. Rashford meiddist í 3-1 sigri United gegn Arsenal fyrir tæpum fjórum vikum en hann skoraði tvö mörk í leiknum. Martial hefur átt í vandræðum með meiðsli alla leiktíðina og misst af síðustu fimm leikjum vegna hásinarmeiðsla. Einu mínútur hans í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð voru þegar hann spilaði seinni hálfleikinn í 2-1 sigrinum gegn Liverpool 22. ágúst. Eini leikur Ronaldos í byrjunarliði það sem af er leiktíð í ensku úrvalsdeildinni var í 4-0 tapinu skelfilega gegn Brentford 13. ágúst. Ronaldo var aftur á móti í byrjunarliði United og skoraði úr víti í síðasta leik fyrir landsleikjahléið, í 2-0 útisigri gegn Sheriff í Moldóvu í Evrópudeildinni. Hann lék einnig báða leiki Portúgals frá upphafi til enda í Þjóðadeildinni, í 1-0 tapinu gegn Spáni og 4-0 sigrinum gegn Tékklandi, en var ekki á meðal markaskorara liðsins.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Sjá meira