Erlent

Vígðu fyrsta heimagerða flugmóðurskipið

Samúel Karl Ólason skrifar
INS Vikrant, við sjóprufanir í ágúst.
INS Vikrant, við sjóprufanir í ágúst. AP/Sjóher Indlands

Indverjar vígðu í dag fyrsta heimabyggða flugmóðurskip ríkisins. INS Vikrant er eitt af tveimur starfræktum flugmóðurskipum Indverja en ráðamenn í Indlandi vilja auka mátt flota ríkisins og auka skipasmíðagetu Indlands til að sporna gegn auknum umsvifum Kína.

AP fréttaveitan hefur eftir Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að um mikilvægan og sögulegan áfanga sér að ræða þar sem Indland sé nú eitt fárra ríkja heimsins sem framleiði eigin flugmóðurskip.

Þá segir varnarmálaráðuneyti Indlands að rúmlega 75 prósent allra þeirra aðfanga og hluta sem þurftu til að smíða skipið hafi verið keypt innanlands. Smíði skipsins tók sex árum lengur en upprunalega var talið og fór kostnaður einnig mikið fram úr áætlunum.

Vonast er til þess að skipið verði fullklárað fyrir árslok 2023.

Flugmóðurskipið er 262 metra langt, þróað af indverska flotanum og byggt í suðurhluta landsins. Það er stærsta herskip sem smíðað hefur verið í Indlandi og getur borið allt að 1.600 manns í áhöfn og þrjátíu orrustuþotur og þyrlur.

Fyrir eiga Indverjar flugmóðurskipið INS Vikramaditya sem keypt var af Rússum árið 2004.

Indverskir sjóliðar í myndatöku á flugdekki flugmóðurskipsins.AP/Prakash Elamakkara

Indverjar ætla í fyrstu að hafa MiG-29K orrustuþotur um borð í flugmóðurskipinu en samkvæmt AP stendur til að kaupa Rafale-M þotur frá Frakklandi og F/A-18 Block III Super Hornet orrustuþotur frá Bandaríkjunum.

Modi sagði í dag að indverska ríkið ætlaði að næstu árum að auka fjárútlát til sjóhersins töluvert.

Það er að miklu leyti rekið til aukinna umsvifa Kínverja í vestanverðu Kyrrahafi og Indlandshafi. Sjóher Kína hefur staðið í nútímavæðingu um árabil og hafa forsvarsmenn hans unnið hörðum höndum að því að gera kínverska flotanum kleift að starfa lengra og lengra frá meginlandi Kína.

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að kínverska flotann samanstanda af 355 skipum, þar á meðal kafbátum, og stefnt sé að því að árið 2025 verði skipin 420 og 460 árið 2030.

Indverski flotinn samanstendur af tveimur flugmóðurskipum, tíu tundurspillum, tólf freigátum og tuttugu smærri skipum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×