Í dag > Í gær Stefán Örn Snæbjörnsson skrifar 15. ágúst 2022 10:01 Ég fæddist inn í þennan heim þegar mánaðarlegur meðalstyrkur koltvísýrings í andrúmsloftinu á Mauna Loa mælingastöðinni á Hawaii var rúmlega 357 milljónahlutar (ppm). Ég vill nýta tækifærið og þakka Charles David Keeling fyrir að sýna mikla þrautseigju við upphaf mælinga á the Keeling Curve. Hver veit hvar við værum í dag án hans einstaklingsframtaks en til þess að lýðræði eigi að virka þarf almenningur að vera vel upplýstur, þökk sé vísinda, og Keeling sérstaklega, þá vitum við afar vel hvernig styrkur koltvísýrings hefur farið stigvaxandi í andrúmsloftinu síðustu 64 ár. Fyrir iðnbyltingu var styrkurinn um 280 ppm, en 26. Apríl 2022 fór hann uppí 422 ppm. Umfjöllun tortryggnu vísindasíðunnar um styrk koltvísýrings á Jörðinni síðustu 420 milljón árin útskýrir hvernig afneitun loftslagsbreytinga byggð á risaeðlumótrökum standast ekki vísindalega skoðun. Til að setja nýlega hlýnun í samhengi þá eru um 3 milljónir ára síðan það var síðast 2-3 °C heitara en það var árið 2009 en þá var hæð sjávarmáls um 25 metrum hærra. Risaeðlur dóu út fyrir 65 milljón árum. Skjáskot af Keeling Curve sem sýnir styrk koltvísýrings í andrúmslofti síðustu 62 árin, tekið af https://gml.noaa.gov/ccgg/trends/graph.html Óæskileg áhrif sérhagsmuna og grænþvottur ríkisstjórna getur komið í veg fyrir vel upplýstan almenning og setja þannig bæði tegundina okkar og aðrar í mikla hættu. Núverandi kerfi þarfnast kerfisbreytinga til að taka betur tillit til vistfræðilegra sjónarmiða, spillingar, samþjöppunar, verðlags og skaðsamlegra starfshátta. Við vitum þetta en samt halda eiginlega öll vandamál áfram að þróast í vitlausa átt. Þess vegna er mjög mikilvægt að efla gagnrýna hugsun og lýðræðislega þátttöku almennings í opinberri stefnumótun. Skjáskot af styrk koltvísýrings í andrúmslofti síðustu 800.000 árin samkvæmt ískjarnasýnum, tekið af https://keelingcurve.ucsd.edu/ Hvað erum við og hvert erum við að fara? Ég vil segja að við séum upp til hópa vel upplýstar manneskjur sem lifum á spennandi tímum mikilla tækniframfara í miðri upplýsingabyltingu. En heilinn okkar getur átt erfitt með að ná utan um jafn stór vandamamál og loftslagsbreytingar og líffræðilegt hrun á vistkerfum Jarðarinnar. Án þess að fullyrða neitt um einstakar manneskjur má þó segja að við sem tegund höfum nú, árið 2022, raskað því jafnvægi sem ríkt hefur síðustu árþúsundin. Það er ekkert sérstaklega langt síðan við hófum að athafna okkur svo að við veltum hinum ýmsu hringrásum Jarðar úr jafnvægi, mestu áhrifin hafa komið frá athöfnum síðustu 50-80 ára. Umhverfisvernd án stéttabaráttu hefur verið líkt við garðyrkjustörf en það liggur fyrir að efnameiri stéttir losa meira magn gróðurhúsalofttegunda heldur en þær efnaminni. Við höfum lifað í gegnum ísaldir og hitaskeið en það sem hefur einkennt síðustu 11.000 árin er tiltölulega stöðugt loftslag sem hefur gert okkur kleift að blómstra sem tegund og skapað hluti eins og rafmagnsreiðhjól, air-fryera, mjaltaþjóna og jarðýtur. Skjáskot af styrk koltvísýrings í andrúmsloftinu síðustu 420 milljón árin, tekið af https://skepticalscience.com/co2-higher-in-past-basic.htm Vísindin hafa leitt okkur á vit ævintýralegra framfara og vakið okkur til vitundar um alheiminn en þau hafa á sama tíma opnað augu okkar fyrir þeim hamförum sem athafnir okkar hafa hrundið af stað. Það er ótvírætt að losun mannkyns á gróðurhúsalofttegundum hefur raskað náttúrulegri kolefnishringrás Jarðar með því að losa meiri koltvísýring út í andrúmsloftið en hringrásin ræður við. Við mannfólkið erum mjög fjölbreytt tegund, við erum allskonar. Það er mjög misjafnt hversu mikið við þurfum að hafa fyrir því að fullnægja grunnþörfum okkar og okkur tekst það misvel á misjafnan máta. Við höfum misjöfn gildi og viðhorf og nálgumst umræður um náttúruvernd oft með þremur misjöfnum viðhorfum: Mannhverf viðhorf: Mannlegir hagsmunir í öndvegi og maðurinn hefur ótakmarkaðan umráðarétt yfir náttúrunni Lífhverf viðhorf: Áhersla á nýja lífssýn þar sem tekið er tillit til allra lífverutegunda og maðurinn ekki talinn æðri öðrum lífverum Visthverf viðhorf: Áhersla á varðveislu heilla vistkerfa, heildin er mikilvægari en einstakar tegundir eða fyrirbæri, hagsmunir mannsins víkja fyrir hagsmunum vistkerfa (Náttúruþankar 2019 - Bjarni E. Guðleifsson, Brynhildur Bjarnadóttir) Nú er svo í pottinn búið að talsvert vatn hefur runnið til sjávar og vísindahyggjunni hefur tekist að hringa sjálfa sig síðan Francis Bacon mælti hin frægu orð “Mennt er máttur”: að þekking væri lykillinn að því að geta stjórnað náttúrunni og vísindin væru aðeins verkfæri mannsins til þess að yfirbuga náttúruna og þannig bæta samfélagið. René Descartes hélt því fram að öll dýr, fyrir utan okkur manndýrin auðvitað, væru aðeins sálarlausar vélar og lagði þannig grunninn að langvarandi hugsanaskekkju um að vistkerfi jarðar væru ekkert annað en hráefni í eldhúsi okkar til að baka stærri og stærri böku úr á hverju ári. Álíka hugsunarháttur og hér fyrir ofan hefur að miklu leyti komið okkur í þessar aðstæður. Endalaus eltingaleikur við hagvöxt endist ekki á plánetu sem er efnislegum takmörkum háð. Sérhagsmunir eiga það til að taka meira til sín en þeir gefa til baka til þess að vaxa meira í dag en í gær. Hlutgervingu er beitt til þess að réttlæta aðgerðir sem arðræna lifandi fólk, dýr eða fyrirbæri. Þannig fær það sem er lifandi eiginleika dauðra hluta, til dæmis með þrælkun, verksmiðjubúskap eða mengun andrúmslofts og vistkerfa, aðeins þægilegra að afneita sannleikanum þannig. Meira í dag en í gær Hér koma nokkur dæmi um það sem er meira í dag en í gær: hiti sjávar, hiti yfirborðs, hæð sjávarmáls, fjöldi loftslagsflóttafólks, styrkur metans- niturdíoxíðs- og koltvísýrings í andrúmsloftinu. Minna í dag en í gær: Hafís suður og norðurskautsins, sýrustig sjávar, fjallajöklar og íshella Grænlands, þolinmæði umhverfissinna. Takk fyrir lesturinn. Með því besta sem þú getur gert til að minnka þinn hlut í heildarlosun er fyrst og fremst að þekkja eigin hegðun og vinna svo markvisst að því að draga úr þeim athöfnum sem valda losun. Fyrir áhugasöm er hér listi yfir ýmsar leiðir til vistvænna breytinga. Til að draga úr heildarlosun okkar eru bæði samstaða og kraftur fjöldans nauðsynleg atriði til að kalla eftir kerfisbreytingum en hvert og eitt einstaklingsframtak skiptir máli. Þú getur haft raunveruleg áhrif á framtíðina og ég hvet öll að vera óhrædd við að byrja að kynna sér málin hægt og rólega. Sjá t.d. umfjöllun tortryggnu vísindasíðunnar um grænkeramataræði og hvernig það er ekki aðeins ein besta loftslagsaðgerðin fyrir einstaklinga heldur líka gott fyrir heilsuna og umhverfið. #aðgerðirstrax Höfundur er meðstjórnandi í loftslagsnefnd Ungra umhverfissinna / Matvælafræðingur og nemi í Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þessi grein er hluti af greinaátaki Loftslagsverkfallsins í aðdraganda Loftslagsfestivalsins 2022. Þessi fjölskylduvæni viðburður verður haldinn á Menningarnótt (20. ágúst nk.) milli 15:00-18:00 á Austurvelli og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá tónlistar atriða, listræna gjörninga, eldræður, gómsætan mat, krítar, og fleira. Hlökkum til að sjá ykkur! Sjá dagskrá. Upphitunarviðburður fyrir Loftslagsfestivalið verður haldinn í Borgarbókasafninu Grófinni fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 16:30-19:00 þar sem samtal um loftlagsmál og skiltagerð munu fara fram: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/spjall-og-umraedur/skiltagerd-og-samtal-um-loftlagsmal https://fb.me/e/1JODbZ2Ea Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Mest lesið Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson Skoðun Halldór 25.04.2026 Halldór Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk Skoðun Skoðun Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Sterkari stuðningur við börn í grunnskólum Kópavogs Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Ungt fólk þarf að vita hvar bjargræðin liggja Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar Sjá meira
Þessi grein er hluti af greinaátaki Loftslagsverkfallsins í aðdraganda Loftslagsfestivalsins 2022. Þessi fjölskylduvæni viðburður verður haldinn á Menningarnótt (20. ágúst nk.) milli 15:00-18:00 á Austurvelli og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá tónlistar atriða, listræna gjörninga, eldræður, gómsætan mat, krítar, og fleira. Hlökkum til að sjá ykkur! Sjá dagskrá. Upphitunarviðburður fyrir Loftslagsfestivalið verður haldinn í Borgarbókasafninu Grófinni fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 16:30-19:00 þar sem samtal um loftlagsmál og skiltagerð munu fara fram: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/spjall-og-umraedur/skiltagerd-og-samtal-um-loftlagsmal https://fb.me/e/1JODbZ2Ea
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar
Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar
Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar