Ekki það að sjálfhverfa sé alltaf alslæm. Að vera svolítið sjálfhverfur getur meira að segja hjálpað okkur í starfsframa, þar sem egóið nýtist okkur sem ákveðinn drifkraftur.
Einkenni sjálfhverfra einstaklinga eru hins vegar þau að þeir fara yfir ákveðinn mörk í samskiptum við aðra.
Þetta er fólkið sem er í rauninni: Ég um mig frá mér til mín!
Algeng einkenni eru:
- Að efast um aðra ef fólk gerir ekki eins og hann/hún vill og sýna það jafnvel
- Stjórnsemi sem einkennist af því að ráðskast með aðra til að ná sínu fram
- Að misnota annað fólk og þá í eigin þágu.
Það sem getur verið erfitt við að vinna með sjálfhverfum einstaklingi er að þú hefur í rauninni ekki sama val og ef þú værir til dæmis í parasambandi við það og getur þá valið um að halda því sambandi áfram eða slíta því.
Eða staða þar sem þú ákveður að taka ekki saman eða vingast við einstakling sem þér finnst vera áberandi sjálfhverf/ur.
Í vinnunni horfa málin öðruvísi við. Því þótt þér finnist sjálfhverfi vinnufélaginn svo sannarlega taka á taugarnar, getur þú lítið í málunum gert.
Enda ekkert sem segir að viðkomandi sé ekki starfi sínu vel vaxinn og standi sig þar með sóma.
Og oft er þetta fólk mjög kurteist og almennt vel liðið af fólki sem þekkir það minna en þú.
Í umfjöllun um sjálfhverfa einstaklinga á vefsíðunni HealthEssentials er fólki fyrst og fremst bent á að fókusa á sjálfan sig.
Því það að halda að þú getir gert eða sagt eitthvað sem fær viðkomandi til að breytast er ólíklegt til að bera árangur.
Þrjú atriði geta hjálpað mikið:
- Að taka hegðun viðkomandi ekki persónulega
- Að setja viðkomandi mörk og standa á þínu, þótt það sé gert á jákvæðan hátt
- Takmarkaðu samskipti og samveru með viðkomandi eins mikið og þú getur, því annars fer óþarfa orka í það hjá þér að láta viðkomandi fara í taugarnar á þér eða bíta í vörina því þig svo sannarlega langar oft til að segja eitthvað. Haltu samskiptunum í lágmarki og passaðu þig samt á því að halda þeim á jákvæðu nótunum.
Með öðrum orðum:
Fókusaðu á sjálfan þig og þína andlegu líðan og jákvæðu orku.
Vertu ófeimin/n við að hugsa: Ég um mig frá mér til mín........en á jákvæðan hátt og með jákvæðu viðmóti.
Því þegar þú ert að vinna með sjálfhverfu fólki snýst stærsta verkefnið um að þú leyfir viðkomandi ekki að taka frá þér of mikið pláss í huganum.