Buðu Tiger Woods á milli 95 til 109 milljarða til að svíkja lit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2022 10:01 Tiger Woods er að reyna að keppa á stóru mótunum á bandarísku mótaröðinni. Getty/Andrew Redington Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods fékk sannkallaða risatilboð frá nýju golfmótaröðinni í Sádí Arabíu samkvæmt framkvæmdastjóra hennar Greg Norman.
Greg Norman sagði frá því í sjónvarpsviðtali við Tucker Carlson á Fox að LIV hafi boðið í kringum sjö hundruð til átta hundruð Bandaríkjadala til að ganga til liðs við sig en það eru á bilinu 95 til 109 milljarðar íslenskra króna. Tiger Woods (@TigerWoods) reportedly turned down between $700-$800 MILLION to join LIV Golf https://t.co/8D02esaOIk— Sports Illustrated (@SInow) August 2, 2022 Tiger Woods hafnaði tilboðinu en bandaríska mótaröðin er í stríði við LIV og bannar öllum kylfingum þátttöku á sínum mótum taki þeir tilboði Sádanna. Norman segir að Woods hafi fengið tilboðið áður en hann sjálfur kom að borðinu. Tiger hefur unnið fimmtán risatitla og er gríðarlega vinsæll kylfingur. „Þessar tölur voru boðnar áður en ég varð framkvæmdastjóri. Sjáðu til Tiger kemur hlutum á hreyfingu ekki satt. Svo auðvitað horfa menn til þess besta af þeim bestu. Þeir töluðu við hann fyrir minn tíma og þessi tala er í eitthvað í nágrenni við það sem þeir buðu honum,“ sagði Greg Norman í viðtalinu sem fór fram á golfvelli Donalds Trump í Bedminster í New Jersey þar sem LIV hélt golfmót um helgina. Tiger Woods turned down an offer between $700M-$800M to join the LIV Golf Invitational Series, LIV Golf CEO Greg Norman confirmed in an interview that aired Monday night. https://t.co/ph4Xv4gBiy— ESPN (@espn) August 2, 2022 Hinn 46 ára gamli Tiger hefur verið einn öflugasti baráttumaður PGA í baráttunni við LIV en Sádarnir hafa reynt að stela bestu kylfinga heims með gylliboðum. Margir hafa freistast og fórnað PGA-mótaröðinni í leiðinni. Woods gagnrýndi þá kylfinga sem sömdu við LIV. „Ég er ósammála þeim. Ég tel að þeir hafa snúið bakinu við því sem hefur leyft þeim að komast í þessa stöðu sem þeir eru í dag,“ sagði Tiger Woods á Opna breska meistaramótinu. Það fylgir auðvitað sögunni að Tiger er í engum peningavandræðum enda þegar orðinn milljarðamæringur og er með gríðarlegar tekjur í gegnum auglýsingasamninga þótt að verðlaunafé hans sé að skornum skammti þessa dagana eftir bílslysið örlagaríka.
Golf LIV-mótaröðin Mest lesið Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Körfubolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Enski boltinn Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Íslenski boltinn „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Handbolti Fleiri fréttir „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Gæti misst af titilvörninni Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira