LIV golfarar misstu þátttökurétt sinn á PGA mótaröðinni eftir að þeir ákváðu að ganga til liðs við LIV mótaröðina sem er fjármögnuð af Sádi-Aröbum.
Forráðamenn Opna breska meistaramótsins meinar þeim þó ekki þátttöku og alls voru 24 LIV kylfingar sem hófu leik á Opna breska. 13 af þeim 24 hafa ekki tekist að forðast niðurskurðinn eftir annan hring, þeirra á meðal Phil Mickelson, Brooks Koepka og Louis Oosthuizen.
Margir kylfingar hafa verið gagnrýndir fyrir að skipta yfir á LIV og sumir sagðir aðeins vera peningagráðugir. Eðlilega vekja þessir kylfingar athygli fjölmiðla og þeir eru reglulega spurðir út í LIV mótaröðina á Opna breska mótinu.
Af þeim LIV kylfingum sem eftir eru á Opna breska er Dustin Johnson í forystu á 9 höggum undir pari eftir annan hring. Johnson, sem er í fimmta sæti á heildarlistanum, segist ekki vera var við allt það fát sem er í gangi í kringum LIV mótaröðina þar sem hann fylgist ekki með fjölmiðlum.

„Ég les ekki neitt. Þannig ef það væri verið að skrifa eitthvað neikvætt um mig þá myndi ég ekki vita af því. Ég veiti þessu enga athygli,“ sagði Johnson áður en hann bætti við.
„Þetta truflar mig alls ekki neitt. Allir hafa sínar skoðanir og ég hef mína. Eina skoðunin sem mér er ekki sama um er mín eigin.“
Talor Gooch er næstur í LIV röðinni á Opna breska á sjö höggum undir pari. Gooch er í áttunda sæti á heildarlistanum en hann segir að öll gagnrýnin sem LIV kylfingarnir hafi fengið sameini þá sem hóp.
„Klárlega, manni líður eins og allir séu á móti okkur en það er bara allt í lagi. Þetta hefur þjappað okkur meira saman,“ sagði Gooch, sem upphaflega ætlaði bara að taka þátt á einu LIV móti en eftir að PGA bannaði hann frá frekari þátttöku á PGA mótaröðinni vegna þess ákvað Gooch að taka þátt í LIV af fullum þunga.

Patrik Reed er þó sá LIV kylfingur sem hefur vakið mesta athygli á Opna breska mótinu til þessa. Reed hefur ekki hikað við að klæðast varningi merktan LIV mótaröðinni alla þrjá dagana til þessa. Reed er ekki í neinum feluleik.
Gengi Reed á golf vellinum er svo annað mál en hann var sjötti af LIV kylfingum eftir annan hring á fjórum höggum undir pari. Alls var Reed í 25. sæti af öllum kylfingum á Opna breska meistaramótinu eftir annan hring. Spilaði hann þriðja hring á tveimur yfir pari og er nú samtals á tveimur höggum undir pari.
