Forréttindafirrti Gúrúinn Gunnar Dan Wiium skrifar 19. maí 2022 14:30 Í framhaldi af því að hafa skrifað pistil undir heitinu Gúrúinn fyrir nokkru fann ég mig tilneyddan bókstaflega að skrifa annan pistil. Málið er að ég skrifaði Gúrúinn ekki með það að leiðarljósi að særa einhvern, gera lítið úr neinum, hvorki þolendum né gerendum. Ég skrifaði hann í fljótfærni eftir að hafa orðið var við mikla umræðu tengda ofbeldi andlegra leiðbeinanda svokallaðra eða gúrúa. Daginn áður hafði ég verið í ánægjulegri svitahofsathöfn á stað sem ég hef aldrei verið á áður. Ég einfaldlega settist niður og henti þessu niður yfir morgunmatnum og dritaði þessu út eins og mér einum er lagið, hvatvís og fljótur að öllu; það er ég. Viðbrögðin sem ég fékk í fyrstu voru jákvæð, mér var hrósað fyrir góða samantekt og góða frásögn og blablabla. Það auðvitað fóðrar mitt veika litla egó. En svo fóru að koma svona raddir, gagnrýni og ásakanir frá kunningjum um hitt og þetta. Nefni til dæmis ásakanir um hræsni, hroka, forréttindarfirru, gerendameðvirkni og skort á samkennd. Þessum einstaklingum mislíkaði hugmyndir mína um ábyrgð þolenda ef svo má segja. Ég vildi meina að með innsæi og dómgreind ættum við að “kola bullshittið“ og „get the fokk out“. Ég lagði áheyrslu á að segja „já“ og „nei“ eftir því hvað átti við. Ég sagðist aldrei hafa upplifað ofbeldi af neinu tagi í þeim athöfnum sem ég tekið þátt í síðustu 15 ár og það er alveg rétt en kannski ekki upplýsingar sem koma málinu neitt við. Málið er að síðustu fjögur ár hef ég verið á fullu að staðsetja mig í þessari metoo-byltingu. Man eftir mótþróanum sem ég upplifði fyrst þegar byltingn fór af stað. Skildi ekki hugtökin, geri það reyndar stundum ekki, en það kemur fyrir. Smátt og smátt hef ég lært og lært í gegnum sársauka einna helst. Það er málið með mig, ég á erfitt með að læra af reynslu annara og læri því einna helst í gegnum sársaukann sem felst í því að halda skoðunum, og oft og tíðum eitruðum skoðunum, á lofti sem sannleika eða staðreyndir. Ætli samkenndarskortur sé ekki megin orsök þessa mynsturs; það að geta illa nýtt sér reynslu annara til setja mig í spor þeirra. Það erfiðasta í þessu öllu fyrir mig er þetta með ábyrgðina. Ég hef misst góða vini í þessum samræðum í gegnum tíðina. Meira að segja skildi einn mig eftir nánast á nærbuxunum í Sundlaug Vestubæjar eitt skipti, peningarlausan á hlýrabol eftir rökræður hvað þetta varðar. Ég tek það fram að ég hef ekki heyrt í manninum síðan og það eru liðin tvö ár. Mótstaða mín er líklega vegna þess að ég er forritaður á þennan hátt: „Þú mætir alltaf á tíma, stendur þig alltaf í vinnu sama hvað, helst ekki verða veikur og ef þú ert heima veikur þá áttu að skammast þín smá.“ Ég er forritaður þannig að ég sjálfur ber ábyrgð á í hvaða aðstæðum og með hverjum ég finn mig. Með öðrum orðum, maður lendir ekki bara í einhverju. Í einhverju samhengi orsaka og afleiðinga tek ég ákvörðun eða ákvarðanir sem leiða mig eitthvert í eitthvað. Ég er einnig forritaður þannig að í vörn snúist ég til sóknar og sæki hart, ekkert væl bara „lets go“. Ég viðurkenni að þetta meingallaða forrit er að gera mér erfitt fyrir því svo tala ég við yndislegu vini mína af öllum kynjum og þau segja mér að hlutir séu allt öðruvísi en ég held að þeir séu. Þeir vilja meina að þolendur, óháð kynjum og aldri, séu alltaf án ábyrgðar. Þetta hefur reynst mér erfitt að skilja. Í þessu samhengi heyrði ég skilaboð góðrar vinkonu minnar sem er yfirlýstur femínisti í gær þar sem hún sagði mér að oft hefur hún haft vit fyrir sér og komið sér út úr aðstæðum og svo stundum er eins og ofbeldið komi algjörlega fyrirvaralaust, eins og um úlf í sauðagæru sé að ræða; þessir atburðir. Menn koma vel fram og heilla allt og alla upp úr skónum og svo reynist fronturinn vera alfalskur og það fyrir mér er vísir í einhvers konar síkópatíu. Þarna nýt ég foréttinda sem karlmaður, hverfandi líkur eru á því að ég „lendi“ í þessum mönnum sem stökkva á mig úr myrkrinu og þar af leiðandi á ég alls ekkert að vera að tjá mig sjálfbærni sem er aðeins miðuð út frá mínum bæjardyrum. En trúið mér ég er að reyna að ná utan um þetta því reynslan hefur sýnt mér að svo oft eru hugmyndir mínar á algjörri skjön við veruleikann eins og fjöldinn skilur hann. Ég er sagður njóta foréttinda og vera firrtur í þeim efnum. Að vera firrtur gefur í skyn að vera haldinn ranghugmyndum, að sjá ekki raunveruleikann og þá forréttindi mín. En kannski er átt við eitthvað allt annað, en málið er að ég sé mín foréttindi, sem karlmaður, sem miðaldra, sem hvítur, sem gagnkynhneigður. Ég sé foréttindi mín sem ýmist áunnin eða erfð, ég skammast mín ekki fyrir foréttindi sem ég nota til góðs en mikill sársauki fylgir að nýta sér foréttindi til ills. Sársaukaþröskuldur minn er nánast engin þolinmæði í þeim efnum. Þess vegna er ég hér að skrifa, því ég þjáist. Ég sé líka foréttindi sem ég er ekki aðnjótandi sem karlmaður, miðaldra, hvítur og gagnkynhneigður. Þau eru mér ljóslifandi kristalskýr og efni í annan pistil. En já, það eru foréttindi sem ég nýt og ég veit ekki hvort ég á að skammast mín fyrir þau. Mér er tamt að skammast mín fyrir allt mögulegt og því ekki það. Það sem ég vil fyrst og fremst koma á framfæri er að ég hef aldrei verið beittur ofbeldi af kynferðislegum eða alvarlegum líkamlegum toga. Og því ber mér að sýna aðgát, tilitssemi og mýkt í mínum skrifum sem opinber persóna. Eins og einn vinur minn sagði mér eitt sinn: „Það eru allir með skoðanir og rassgöt og þótt þú sért með rassgat þá þýðir það ekki að þú þurfir að sýna það hægri-vinstri.“ Mér þykir óendandlega leitt að ég særði fólk með orðum mínum um ábyrgð þolenda í ofbeldismálum. Það var í alvöru ekki ásetningur minn og raunverulega vil ég fyrir alla að ein allsherjar valdefling eigi sér stað svo og að gerendur hætti að framkalla þolendur. Ég lofa að sýna sjálfum mér alla þá gagnrýni og mínar hugmyndir allan þann fyrirvara sem unnt er í þeim tilgangi að vaxa úr villu yfir í sannleika. Höfundur starfar sem smíðakennari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Þvottahúsið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun