Innlent

Ís­land upp um fimm sæti á Regn­boga­korti Evrópu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Malta trónir enn á toppnum en Ísland er komið upp í níunda sæti.
Malta trónir enn á toppnum en Ísland er komið upp í níunda sæti. ILGA-Europe

Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í níunda sæti en var í því fjórtánda í fyrra. Utanríkisráðherra segir lög um kynrænt sjálfræði spila stórt hlutverk í þessari þróun.

Evrópusamtök hinsegin fólks, ILGA-Europe, birta Regnbogakortið árlega í kring um alþjóðlegan baráttudag hinsegin fólks sem er 17. maí. Kortið sýnir á myndrænan hátt lagalega stöðu og réttindi hinsegin fólks í ríkjum Evrópu. 

Fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að lög um kynrænt sjálfræði, sem sett voru hér á landi árið 2019, hafi komið til móts við ný og breytt viðhorf til opinberrar skráningar kyns og stuðli að réttarbótum fyrir trans og intersex fólk með því að staðfesta rétt einstaklinga til að breyta kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð. 

Þá hafi réttur trans foreldra enn fremur verið bættur þegar kemur að foreldraskráningu. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra fagnar því að Ísland sé komið í tíu efstu ríkin á listanum. Hún segir það mega rekja til þessara breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði.

„Ísland stefnir enn hærra og hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra nú lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun í málefnum hinsegin fólks. Verði þingsályktunartillagan samþykkt mun hún leiða til enn frekari réttarbóta fyrir hinsegin fólk,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins. 

Slík aðgerðaráætlun, auk verkefna í aðgerðaráætluninni, er talin líkleg til að þoka Íslandi enn hærra á Regnbogakortinu. 

Danmörk og Ísland eru hástökkvarar Norðurlandanna í ár og er Danmörk nú í öðru sæti á kortinu, en var í níunda sæti í fyrra. Svíþjóð og Noregur hækka um eitt sæti en Finnland fellur niður um sex sæti og er nú í tólfta sæti á listanum. Malta trónir enn á toppnum og Aserbaídsjan er enn í neðsta sæti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×