Viðskipti innlent

Aug­lýsinga­deild RÚV grimm á aug­lýsinga­markaði

Jakob Bjarnar skrifar
Fyrirferð Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði er mörgum þyrnir í augum.
Fyrirferð Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði er mörgum þyrnir í augum. Vísir/Vilhelm

Auglýsingadeild Ríkissjónvarpsins seldi auglýsingar fyrir rúma tvo milljarða í fyrra sem er um 25 prósenta vöxtur milli ára. 

Þetta kemur fram í nýlega útgefinni árskýrslu RÚV sem tekur til ársins í fyrra.

Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri Símans segir erfitt að eiga við slíka samkeppni ríkisins.

„Þetta er mikill vöxtur milli ára á markaði sem er heldur að dragast saman en þarna nýtur Ríkisútvarpið auðvitað forskots nær 5 milljarða króna í skattfé til að framleiðslu efnis,“ segir Magnús í samtali við Vísi.

Magnús segir með ólíkindum að hið opinbera fjölgi stöðugildum í auglýsingasölunni þegar öll umræða á Alþingi gangi út á að minnka umsvif stofnunarinnar á auglýsingamarkaði.síminn

Hann segir að ef menn vilji leita nánari skýringa á þessari miklu sókn stofnunarinnar á auglýsingamarkað geti reynst athyglisvert að horfa ekki einvörðungu til aukningar milli ára því tekjurnar voru á svipuðu róli bæði árin 2018 og 2019.

„Tekjufallið árið 2020 skýrist líklega af því að sá starfsmaður sem harðast beitir sér í tengingunni milli sölu og dagskrár var erlendis það ár en hefur nú snúið til baka og heldur betur slegið í klárinn. Það er svo auðvitað með ólíkindum að sjá að hið opinbera sé að fjölga stöðugildum í sölu á meðan öll umræða á Alþingi snýst um að minnka umsvif á samkeppnismarkaði,“ segir Magnús.

Einar Logi auglýsingastjóri öflugur

Magnús er þarna að tala um auglýsingastjóra Ríkisútvarpsins, Einar Loga Vignisson, sem dvaldi í Portúgal árið 2020 og þá dró úr sókninni. Magnús telur einsýnt að þarna sé orsakasamhengi.

Í nýlegum ársreikningi stofnunarinnar kemur fram að auglýsingadeildin, sem eftir að Ríkisendurskoðun gerði athugasemdir við rekstrarfyrirkomulagið, var breytt í dótturfélag og heitir nú RÚV Sala og ber ábyrgð á allri sölu í því sem heitir tekjuaflandi samkeppnisrekstur, afl­aði tæp­lega 2,4 millj­arða króna í tekjur í fyrra. Af því eru 2.206 millj­ónir tekjur af aug­lýs­inga­sölu eða 402 millj­ónum krónum meira en á árinu 2020. Árið sem Einar Logi var fjarri góðu gamni.

Einar Logi Vignisson er auglýsingastjóri stofnunarinnar og afar öflugur ef marka má Magnús Ragnarsson.SÁÁ

Kjarninn skrifar frétt upp úr árskýrslunni og þar er bent á að til sam­an­­burðar megi nefna að rekstr­­ar­­styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla, sem úthlutað er árlega, voru tæp­­lega 389 millj­­ónir króna í fyrra sem dreifð­ust á 19 mis­­mun­andi miðla.

227 milljónir króna í laun auglýsingasölumanna

Hagnaður af rekstri RÚV Sölu eftir uppgjör, viðskipti við móðurfélagið og launagreiðslur var 124 millj­ónir króna á árinu 2021. Laun og lífeyrisgreiðslur til starfsmanna RÚV Sölu, sem voru 16 (eru nú 17), eru alls 227 milljónir króna. 

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri er með 2,7 milljónir króna í laun á mánuði. Tólf starfsmenn Ríkisútvarpsins eru með yfir eina milljón króna í laun á mánuði en í dótturfélaginu, RÚV Sala, eru meðallaunin tæpar 1,2 milljón á mánuði. Einar Logi er með 1,7 milljón króna í laun á mánuði.vísir

„Það þýðir að með­al­tal kostn­aðar vegna launa og gjalda starfs­manna RÚV Sölu var 1.182 þús­und krónur á mán­uði. Einar Logi Vign­is­son, fram­kvæmda­stjóri RÚV Sölu var með um 1,7 millj­ónir króna í heild­ar­launa­kostnað að með­al­tali. Í árs­lok 2021 hafði starfs­mönnum RÚV Sölu fjölgað um einn í 17. Þetta þýðir að auglýsingasölumenn ríkisstofnunarinnar eru með hæstu laun þar innan dyra. 

En eins og segir í Kjarnanum voru samkvæmt samantekt Frjálsrar verslunar 12 starfsmenn með yfir milljón krónur á mánuði hjá Ríkisútvarpinu; Stefán Eiríksson útvarpsstjóri með 2,7 milljónir króna á mánuði í laun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×