Samningaviðræður milli stjórnar Twitter og Musks stóðu yfir fram á mánudagsmorgun en hann gerði nýverið óumbeðið tilboð í allt hlutafé fyrirtækisins. Fyrir helgi var síðan greint frá því að hann væri byrjaður að fjármagna 46,5 milljarða bandaríkjadala kaupin.
Báðir aðilar hafa rætt ýmis útfærsluatriði, þar á meðal tímalínu til að loka mögulegum samningi og þau gjöld sem yrðu greidd ef annar aðili myndi ganga frá kaupunum eftir að samningur væri undirritaður, að sögn New York Times.
Tóku tilboðinu ekki mjög alvarlega í fyrstu
Viðræðurnar héldu áfram eftir stjórnarfund Twitter á laugardagsmorgun þar sem tilboð Musks var rætt. Heimildarmenn blaðsins segja að stjórnin horfi öðruvísi á tilboðið eftir að Musk byrjaði að fjármagna kaupin. Það hafi leitt til þess að ellefu stjórnarmeðlimir Twitter gátu loks alvarlega íhugað tilboð Musks upp á 54,20 bandaríkjadali á hlut.
Enn eigi eftir að klára að útfæra samkomulagið en það sem í upphafi virtist vera mjög ólíkleg viðskipti virðist nálgast lendingarstað. Þó geti viðræðurnar enn siglt í strand.
Þann 14. apríl síðastliðinn lýsti Musk yfir þeim vilja sínum að kaupa Twitter í heilu lagi og taka fyrirtækið af hlutabréfamarkaði. Musk sem hefur yfir 83 milljónir fylgjenda á miðlinum byrjaði að kaupa hluti í Twitter fyrr á þessu ári og varð einn stærsti einstaki eigandi fyrirtækisins.
Sérfræðingar á Wall Street voru fljótir að hafna tilboði auðkýfingsins þar sem óljóst var hvort hann væri með nægt lausafé til að borga fyrir kaupin. Það breyttist eftir að hann gekk til samninga við fjármálastofnanir.