Rangnick: Meistaradeildarsætið alveg farið Atli Arason skrifar 23. apríl 2022 14:30 Ralf Rangnick EPA-EFE/PETER POWELL Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri Manchester United, var niðurlútur eftir 3-1 tap sinna manna gegn Arsenal í dag. Þjóðverjinn stóð ekki á svörum aðspurður að því hvort að vonir United að ná Meistaradeildarsæti væru nú farnar. United er sex stigum á eftir Arsenal þegar fjórir leikir eru eftir. „
Já ég held það. Fyrir leikinn í dag var ólíklegt að við myndum ná topp fjórum en eftir úrslitin í dag er fjórða sætið alveg farið,“ sagði Rangnick í viðtali á BT sport eftir leik. „Eini gallinn við leik okkar í dag var að við vörðumst ekki nógu vel bæði inn í og við vítateiginn. Það átti við í öllum mörkunum sem við fengum á okkur í dag.“ Rangnick var alls ekki ánægður með Craig Pawson, dómara leiksins og teymið hans í dag. „Við vorum heldur ekki heppnir með myndbandsdómana. Þriðja mark Arsenal var augljóslega rangstaða og seinna mark Ronaldo var ekki rangstaða. Svo var líka annað atvik í fyrri hálfleik þar sem leikmaður Arsenal handleikur boltann inn í teig. Við vorum ekki ánægðir með dómgæsluna í dag.“ Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, klikkaði á vítaspyrnu í stöðunni 2-1. Það hefði mögulega breytt öllu ef hann hefði skorað að mati Rangnick. „Það hefði hjálpað okkur að jafna úr vítaspyrnunni og mögulega hefði það breytt öllum leiknum. Það gekk samt ekki því boltinn fór í stöngina en við skutum alls tvisvar í stöngina og einu sinni í þverslánna í leiknum, við vorum óheppnir,“ sagði Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri Manchester United.
Enski boltinn Mest lesið Mikil ánægja með Mikael: „Hann hefur gjörbreytt liðinu“ Fótbolti Þjálfari Sverris rekinn eftir tvo leiki Sport Burrow leggst undir hnífinn og verður lengi frá Sport „Sérfræðingarnir sem hafa spáð okkur tólfta sætinu“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Íslenski boltinn Bellingham batnaði hraðar en búist var við Fótbolti Varamaður Mikaels skoraði jöfnunarmarkið Fótbolti Lárus Orri: Fórum í „Fuck you mode“ Sport Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-1 | Eyjamenn náðu ekki upp í efri hlutann Íslenski boltinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn Fleiri fréttir Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Víti í blálokin dugði Liverpool Tvö frá Haaland og Manchester er blá Hvoru megin í Manchester er meiri krísa? Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Zubimendi með tvö í frábærum sigri Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Staðfestir að Bayindir verði í markinu gegn Man City Delap gæti verið frá fram í desember Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni „Báðir með svona Manchester United æxli í heilanum“ Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Engin stig dregin af Chelsea Tyrkneska félagið staðfestir komu Onana Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Sjá meira