Ólíklegar hetjur skutu Tottenham upp í Meistaradeildarsæti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. apríl 2022 17:29 Emerson Rayal og Matt Doherty fagna marki þess fyrrnefnda, en bakverðirnir skoruðu báðir í dag. Ryan Pierse/Getty Images Tottenham vann afar öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn lyftir liðinu í það minnsta tímabundið upp í fjórða sæti deildarinnar, en þrír varnarmenn komu sér á blað fyrir heimamenn.
Fyrri hálfleikur var að mestu frekar bragðdaufur framan af. Það lifnaði þó yfir hlutunum þegar Fabian Schär kom gestunum í Newcastle í forystu á 39. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Heimamenn voru ekkert að vorkenna sjálfum sér of lengi því aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Ben Davies metin með góðu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Heung-Min Son og staðan því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og á 48. mínútu kom bakvörðurinn Matt Doherty Tottenham í 2-1 forystu. Sex mínútum síðar var staðan svo orðin 3-1 þegar Heung-Min Son batt endahnútinn á fallega skyndisókn. Emerson Royal bætti fjórða marki Tottenham við á 63. mínútu áður en varamaðurinn Steven Bergwijn gulltryggði 5-1 sigur Lundúnaliðsins þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka. Tottenham situr nú í fjórða sæti deildarinnar með 54 stig efti 30 leiki. Liðið hefur jafn mörg stig og Arsenal, en er með betri markatölu. Arsenal á þó tvo leiki til góða á erkifjendur sína. Newcastle situr hins vegar í 15. sæti deildarinnar með 31 stig.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Sjá meira