Framundan hjá Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðings er að skrifa skýrslur um allt þetta rauða veður í vetur.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég er mikil B manneskja og vakna eins seint og ég kemst upp með, sem er í kringum hálf átta á virkum dögum, en nokkra daga í mánuði er ég á vöktum á Veðurstofunni og þarf þá að vakna 5:20 eða 6:20 eftir því hvort ég mæti klukkan sex eða sjö.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Vekja unglingana, og þessa dagana þarf að færa þeim yngri morgunmat í rúmið og hjálpa honum meira því hann er fótbrotinn með gifs upp í nára.
Alla jafna fá þeir ekki svona þjónustu.“
Hvers vegna er Öskjuhlíðin í uppáhaldi hjá þér?
„Öskjuhlíðin er perla í miðri borginni. Ég er svo heppin að hún er í göngu og hjólaleiðinni minni til og frá vinnu svo ég fer þar um næstum því á hverjum virkum degi. Það er ótrúlega hreinsandi eftir erfiða vinnudaga að ganga heim um fallega skógarstíga og fá smá orkuskot frá náttúrunni.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Á Veðurstofunni eru mín helstu verkefni næstu vikur að rýna þær viðvaranir sem við gáfum út í vetur, skrifa skýrslur um „rauðu veðrin” og sinna þróun á viðvörunarkerfinu okkar, ásamt því að sinna daglegum rekstri veðurþjónustunnar bæði í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli. Ásamt því tek ég þátt í kosningabaráttu VG í borginni, en þar sit ég í þriðja sæti á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og hlakka mikið til.
Svo liggur líka fyrir að skrifa meistararitgerð í Alþjóðasamskiptum við HÍ, en það verkefni hefur vissulega fengið minni athygli í vetur en ég vonaðist til.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Ég er með lista af verkefnum sem þarf að sinna í vikunni, fyrir mánaðamót og svo stærri verkefnum sem þarf að sinna, en mjög mikill tími fer í daglegan rekstur, að bregðast við ýmsu sem kemur upp og aðstoða vaktina ef þess þarf.
Ég get verið mjög skipulögð og komið fjölmörgu í verk á stuttum tíma, en svo get ég vel unnið í skipulögðu kaosi og er oft ekkert afkastaminni í slíkum aðstæðum.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég legg upp með að fara að koma mér í rúmið um klukkan ellefu en oftast dregst það til miðnættis.“