Samhliða lokuninni ákvað LME einnig að ógilda viðskipti frá því í morgun.
Þegar lokað var fyrir viðskiptin hafði verðið á nikkel tvöfaldast frá því í gær, hækkað um 177 prósent, eftir að hafa hækkað um 75 prósent yfir helgina. Við lokun var verðið á tonninu komið yfir 100 þúsund dollara.
Rússland er einn stærsti útflutningsaðili nikkels í heiminum og átökin í Úkraínu og viðskiptaþvinganir vesturveldanna hafa ýtt mjög undir eftirspurn eftir málminum.
Meira þurfti þó til að skapa þá stöðu sem nú er komin upp en verðið fór upp úr öllu valdi þegar Tsingshan Holding Group, einn stærsti framleiðandi nikkels og ryðfrís stáls í heiminum, keypti gríðarlegt magn af nikkel.
Ástæða kaupana var skortstaða sem fyrirtækið hefur tekið gagnvart málminum frá því í fyrra, það er að segja veðmála sem byggðu á þeim væntingum að verð færi lækkandi. Þá vildi fyrirtækið forðast áhrif kostnaðarsamra veðkalla.
Sérfræðingar segja stöðuna afar óeðlilega en eins og stendur eiga margir erfitt með að nálgast nikkel til að geta uppfyllt samninga.
LME segist munu vinna að því að geta opnað aftur fyrir viðskiptin.
Afleiðumarkaðurinn í Shanghai hefur hækkað umsýslugjald sitt vegna viðskipta með nikkel og hvatt fjárfesta til að forðast áhættu, fjárfesta skynsamlega og vinna saman að því að tryggja stöðugleika á markaðnum.