Segir að enginn stjóri geti fundið skyndilausnir fyrir Tottenham Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2022 18:00 Antonio Conte segir það ómögulegt að laga vandamál Tottenham á stuttum tíma. Robin Jones/Getty Images Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að enginn knattspyrnustjóri í heiminum geti fundið töfralausnina til að laga vandamál félagsins á stuttum tíma.
Conte tók við Tottenham í nóvember á seinasta ári og fékk þá í hendurnar óstöðugt lið. Þrátt fyrir að gengi liðsins hafi batnað undir stjórn Ítalans þá er óstöðugleikinn langt frá því að vera horfinn. Liðið vann frækinn sigur gegn Englandsmeisturum Manchester City um miðjan febrúar, tapaði svo gegn fallbaráttuliði Burnley í næsta leik, vann svo 4-0 sigur gegn Leeds og féll svo úr leik í FA-bikarnum eftir tap gegn B-deildarliði Middlebrough. „Saga Tottenham er svona, mikið upp og niður,“ sagði Conte á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Everton sem fram fer á mánudagskvöldið. „Til að við getum orðið samkeppnishæfir og farið að reyna að vinna eitthvað og berjast um mikilvæga hluti og verða sterkt lið þá er það fyrsta sem við þurfum að gera er að finna jafnvægi.“ „Að gera það og að breyta stöðunni sem hefur verið hjá félaginu í mörg, mörg ár er ekki einfalt verkefni. Til styttri tíma litið er ómögulegt að gera það, ekki bara fyrir mig, heldur hvaða þjálfara sem er sem myndi koma hingað.“ „Þetta hefur verið saga félagsins seinustu tuttugu ár,“ sagði Conte að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira