Búið að finna stuðningsmennina sem köstuðu hlutum í Elanga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. febrúar 2022 07:00 Stuðningsmenn Leeds sem köstuðu hlutum inn á völlinn eiga yfir sér lífstíðarbann frá leikjum félagsins. Laurence Griffiths/Getty Images Forsvarsmenn enska knattspyrnufélagsins Leeds United segja að þeir séu búnir að finna sökudólgana sem köstuðu hlutum inn á völlinn er leikmenn Manchester United fögnuðu marki gegn liði þeirra á sunnudaginn.
Hinn 19 ára Anthony Elanga, leikmaður Manchester United, fékk fljúgandi hlut í höfuðið þegar liðið fagnaði þriðja marki sínu í 4-2 sigri gegn erkifjendunum í Leeds. Forsvarsmenn Leeds segja að upptaka af öryggismyndavélum sýni stuðningsmennina sem köstuðu hlutunum, og að upptökunni hafi verið komið til lögreglunnar í Vestur-Jórvíkurskíri. Lögreglan hefur nú þegar handtekið níu manns í tengslum við leikinn. „Þetta fólk er ekki fulltrúar okkar dygga aðdáendahóps,“ segir í yfirlýsingu frá Leeds. „Það er ekki hægt að fela sig frá þeirri staðreynd að þetta er ekki í fyrsta skipti sem atvik sem þetta kemur upp á Elland Road á þessu ári,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. „Þetta fólk á ekki aðeins yfir höfði sér sakamálakæru, heldur verða þau bönnuð frá leikjum Leeds á meðan að rannsókn stendur yfir. Þau eiga síðan yfir höfði sér lífstíðarbann frá leikjum ef þau verða dæmd sek í þessu máli.“
Enski boltinn Mest lesið „Hann hefur náð að fela hann varnarlega alveg fáránlega vel“ Körfubolti Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Enski boltinn Upprúllun hjá City gegn litla nágrannaliðinu Enski boltinn Sá elsti til að vinna á ATP-mótaröðinni og sló met Federer Sport Milan áfram í miðjumoði eftir jafntefli Fótbolti Pep staðfestir að Walker vilji fara í janúar Enski boltinn Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Handbolti Kane tryggði Bayern fjögurra stiga forystu Fótbolti Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Tólfta jafntefli Juventus sem hefur ekki enn tapað deildarleik Fótbolti Fleiri fréttir Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Pep staðfestir að Walker vilji fara í janúar Tæpt hjá Leeds gegn Harrogate úr D-deildinni Upprúllun hjá City gegn litla nágrannaliðinu Frækinn sigur Plymouth en þægilegt hjá Chelsea Sjáðu glæsimark Alexander-Arnold og fyrsta mark Chiesa fyrir Liverpool Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Alfons og Willum áfram í enska bikarnum Man. City að kaupa tvítugan Úsbeka fyrir sex milljarða Sextán ára strákur í byrjunarliði Liverpool í dag Amorim man ekki eftir því að hafa sagt að það vanti nýja leikmenn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja Isak bestur í desember „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Sjáðu sigurmark Bergvall gegn Liverpool Maguire tvisvar tekinn fyrir hraðakstur á þremur dögum Hljóp beint í fang systur sinnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Liverpool Gerði grín að gagnrýni Arteta á boltann Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Sjá meira