„Þó hann sé einfættur þá verður hann að spila“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. febrúar 2022 18:01 Antonio Conte lagði mikla áherslu á það hversu mikilvægur Harry Kane er fyrir Tottenham. Ryan Pierse/Getty Images Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, sagði frá því í dag að Harry Kane geti tekið þátt í leik liðsins gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni á morgun og að hann myndi velja framhjerann í liðið þó að hann væri einfættur.
Kane lenti í smá hnjaski í fræknum 3-2 sigri Tottenham gegn Englandsmeisturum Manchester City um helgina þar sem hann virtist finna til í bakinu. Það voru því einhverjir sem óttuðust það að framherjinn yrði frá í næstu leikjum, en Conte hefur nú sagt frá því að svo verði ekki. „Harry [Kane] fékk smá högg á bakið en hann verður að spila. Jafnvel þó hann sé einfættur þá verður hann að spila,“ sagði Conte. „Hann er góður núna og hann veit hversu mikilvægur hann er fyrir liðið. Hann er mikill persónuleiki sem færir okkur mikla reynslu.“ Conte tók það þó einnig fram að hann neyðir engann til að spila ef þeir eru að glíma við meiðsli. „Ég er að grínast. Ég neyði engann til að spila ef hann er meiddur. Ég segi þetta bara til að leggja áherslu á hversu mikilvægur hann er fyrir okkur. Hann er góður og hann er tilbúinn,“ sagði Conte að lokum. Tottenham heimsækir Burnley annað kvöld klukkan 19:30 í mikilvægum leik fyrir bæði lið. Sigur lyftir Tottenham upp að hlið Arsenal og West Ham í fimmta til sjöunda sæti deildarinnar, en baráttan um Meistaradeildarsæti er hörð. Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með Burnley á morgun vegna meiðsla, en liðið þarf svo sannarlega á stigum að halda í fallbaráttunni.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira