Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna um leið og maðurinn eða klukkan 6:50 við Bítið á bylgjunni, hláturinn í Gulla Helga og Heimi Karls.
Maðurinn minn er 11 árum eldri en ég og þegar ég kynntist honum fyrst fannst mér þetta vera eina sem minnti verulega á aldursmun okkar en hann hefur vaknað við útvarpið í mörg ár og ég er bara farin að kunna vel við það.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég tek út úr mér tanngnístursgóminn og skakklappast að kaffivélinni og skríð aftur undir sæng með kaffibollann og renni yfir frétta og samfélagsmiðla í símanum.“
Áttu einhver góð ráð um þetta: Hvernig getum við verið jákvæðari núna um hávetur, með fullt af neikvæðum fréttum í fjölmiðlum og Covid heimsfaraldur á fullum skrið?
„Í fyrsta lagi vil ég segja að ég skil vel að fólk skuli vera orðið þreytt á Covid og takmörkunum tengdum veirunni.
Hins vegar skiptir ótrúlega miklu máli í öllum þrengingum í lífinu að halda áfram að lifa og hætta að bíða eftir því að allt verði betra af því að lífið og allt það góða sem það gefur er oftast samhliða því sem er erfitt og sárt.
Sem dæmi tek ég fólk í sorg, fólk sem hefur misst ástvin og lífið verður aldrei samt og sorgin verður samferðarmaður inn í framtíðina en samt getur sá sem syrgir átt mikla gleði og tilhlökkun og hamingju þó hann sé líka sorgmæddur.
Það er líka hægt að eiga skemmtilegt líf þó maður sé alvarlega veikur ef maður leggur áherslu á það sem maður hefur, ef maður getur verið með ástvinum sínum, notið náttúrunnar, hreyft sig og skapað stemningsstundir í hversdeginum með því að hafa sig til, klæða sig í sín fallegustu föt, borða góðan mat og lesa bækur eða horfa á bíómyndir og hlæja með skemmtilegu fólki.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Fyrir utan hin hefðbundnu prestsstörf er ég að gefa út ljóðabók sem kemur í verslanir í næstu viku, hún ber heitið Meinvarp.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Ég skrifa allt hjá mér sem ég þarf að gera og skipulegg mikið fram í tímann, ég er greind með mjög aggresívt ADHD eða eins og geðlæknirinn orðaði það á sínum tíma ef ADHD ið mitt væri próf í skóla væri ég með níu í einkunn.
Þess vegna leyfi ég hlutum aldrei að safnast upp heldur skipulegg vel og sendi þannig mínu adhd oft fingurinn.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Oftast milli klukkan tíu og ellefu, ég hef ekki taugakerfi fyrir lítinn svefn.“