Enn á ný fær Jóhann ekki að spila vegna veirusmita Sindri Sverrisson skrifar 14. janúar 2022 11:23 Jóhann Berg Guðmundsson í leik gegn Manchester United um jólin. Þremur leikjum Burnley var frestað í desember vegna kórónuveirusmita hjá andstæðingum liðsins. Getty/Martin Rickett Leik Burnley og Leicester sem fara átti fram um helgina hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Burnley.
Þetta er fjórði leikurinn sem fresta þarf hjá Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley á þessari leiktíð. Áður hafði þremur leikjum verið frestað hjá liðinu í desember vegna smita hjá andstæðingum Burnley en þetta er fyrsti leikurinn sem fresta þarf vegna smita hjá Burnley-mönnum. Þá var leik Burnley við Tottenham fyrr á þessari leiktíð frestað vegna snjókomu. Í yfirlýsingu frá ensku úrvalsdeildinni segir að beiðni Burnley um að fresta leiknum við Leicester hafi verið samþykkt þar sem að ekki hafi verið nægilega mikill fjöldi leikmanna til taks (13 útileikmenn og einn markvörður) vegna kórónuveirumála og meiðsla. Burnley átti að spila frestaðan leik við Watford næsta þriðjudag en nú er alls kostar óvíst að af því verði. Burnley var án sjö leikmanna vegna kórónuveirusmita í 2-1 tapinu gegn Huddersfield í enska bikarnum um helgina, auk þess sem stjórinn Sean Dyche var smitaður. Síðan þá hefur félagið svo selt framherjann Chris Wood til Newcastle. Burnley er sem stendur í fallsæti með 11 stig eftir 17 leiki, með aðeins einn sigur en átta jafntefli, og er tveimur stigum frá næsta örugga sæti.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira