Segir biturð Gerrards út í United hafa hrakið bróður sinn frá Villa Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2022 16:01 Axel Tuanzebe er mættur í titilbaráttuna á Ítalíu með Napoli. Getty/Franco Romano Axel Tuanzebe, miðvörður Manchester United, er mættur til Napoli að láni eftir að hafa síðustu ár verið lánaður til Aston Villa. Hann lék aðeins átta mínútur undir stjórn nýs stjóra Villa, Stevens Gerrard.
Tuanzebe var lánaður til Villa í sumar en lánsdvölinni lauk fyrr en ella og bróðir hans og umboðsmaður, Dimitri, kom honum til Ítalíu. Dimitri vill meina að það hvernig Liverpool-goðsögninni Gerrard líði gagnvart Manchester United hafi haft áhrif á stöðu Tuanzebe hjá Villa, eftir ráðningu Gerrards í nóvember. „Axel ákvað ekki að færa sig um set fyrr en það varð mjög ljóst að hann væri ekki fyrsta val stjórans í stöðu miðvarðar auk þess sem tilboð Napoli var mjög freistandi,“ sagði Dimitri við ESPN. „Ég er með mjög blendnar tilfinningar gagnvart tíma Axels hjá Villa. Hann er dáður af stuðningsmönnunum eftir að hafa fært liðinu mikið í þeim árangri sem það náði í næstefstu deild, þegar hann var lykilmaður í að koma liðinu upp í úrvalsdeildina. Hins vegar, eftir komu Stevens Gerrard á Villa Park, þá var eins og rígurinn á milli Man. United og Liverpool lifnaði við. Til að fyrirbyggja misskilning þá var Axel opinn fyrir því að vera áfram hjá Villa. Hann elskar stuðningsmennina og að vera í Birmingham en hann þarf líka að byggja upp ferilinn og ná fram sínu besta í umhverfi þar sem hann fær sanngjörn tækifæri til að spila,“ sagði Dimitri.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira