26 ára leikmaður Southampton leggur skóna á hilluna Arnar Geir Halldórsson skrifar 2. janúar 2022 10:01 Í leik á Old Trafford fyrir fjórum árum. vísir/Getty Enska úrvalsdeildarliðið Southampton hefur staðfest að hinn 26 ára gamli Sam McQueen hafi ákveðið að hætta knattspyrnuiðkun vegna meiðsla.
McQueen er fæddur árið 1995 en hann þótti efnilegur vinstri bakvörður á sínum yngri árum og var til að mynda hluti af U21 árs landsliði Englands á sínum tíma. Hann komst að í akademíu Southampton átta ára gamall og var hluti af gríðarlega efnilegu unglingaliði hjá félaginu sem skartaði leikmönnum á borð við Luke Shaw, James Ward-Prowse og Calum Chambers svo einhverjir séu nefndir. Hann lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni haustið 2016; gerði skömmu síðar nýjan fimm ára samning við Southampton og framtíðin virtist björt. Í október 2018 meiddist McQueen illa í leik með Middlesbrough, þar sem hann lék sem lánsmaður og eru það meiðslin sem binda nú enda á knattspyrnuferil kappans. This is Sam McQueen s story, in his own words pic.twitter.com/Mr1BFF59C6— Southampton FC (@SouthamptonFC) January 1, 2022 Þrátt fyrir að hafa lagt hart að sér í endurhæfingu hefur McQueen ekki spilað leik aftur síðan hann meiddist og hefur nú ákveðið að snúa sér að öðrum hlutum eftir átján ára veru hjá Southampton. McQueen er kvaddur með virktum á samfélagsmiðlum Southampton en þar þakkar hann jafnframt félaginu fyrir mikinn stuðning á undanförnum árum.
Enski boltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira