Sport

Helgi Sigurðsson ráðinn aðstoðarþjálfari Vals

Atli Arason skrifar
Helgi Sigurðsson
Helgi Sigurðsson vísir/s2s

Helgi Sigurðsson hefur tekið við hlutverki aðstoðarþjálfara Heimis Guðjónssonar hjá knattspyrnufélagi Vals en félagið staðfesti tíðindin rétt í þessu.

Helgi er öllum stuðningsmönnum Vals vel kunnugur en hann lék með félaginu á árunum 2007-2009 og skoraði 31 mark í 63 leikjum.

Á síðasta tímabili stýrði Helgi liði ÍBV upp í efstu deild áður en hann lét af störfum sem þjálfari liðsins af fjölskylduástæðum.

Í nóvember síðastliðnum var tilkynnt að Helgi myndi taka við þjálfun hjá 2. flokk Fjölnis en nú er ljóst að hann lætur af störfum hjá Fjölni til að taka við starfi aðstoðarþjálfara Vals.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×