„Þetta var svolítið eins og að tala við vegg“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. desember 2021 10:23 Antonio Conte segir að fundurinn milli þjálfara ensku úrvalsdeildarinnar og forráðamanna deildarinnar hafi verið tilgangslaus. Tottenham Hotspur FC/Tottenham Hotspur FC via Getty Images Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að fundurinn á milli ensku úrvalsdeildarinnar og þjálfara deildarinnar sem haldinn var til að ræða vandræðin í kringum kórónuveirufaraldurinn hafi verið eins og að tala við vegg.
Nú þegar hefur verið ákveðið að fresta þremur leikjum vegna kórónuveirunnar sem áttu að fara fram á morgun. Alls hefur nú 13 leikjum í ensku úrvalsdeildinni verið frestað af þeim sökum á síðustu dögum og vikum. Í seinustu viku greindust 90 jákvæð próf meðal leikmanna og starfsmanna liða deildarinnar, en aldrei áður hafa svo margir greinst á einni viku. Líkt og aðrir stjórar deildarinnar sat Antonio Conte fyrir svörum blaðamanna á fimmtudaginn fyrir leiki morgundagsins. Hann var spurður út í fundinn sem haldinn var, og þá helst hvort að honum hafi þótt hann vera tímasóun. „Já, ég held það,“ sagði Conte. „Þetta var svolítið eins og að tala við vegg og af þeim ástæðum ætla ég ekki að fara of mikið út í það hvað var rætt.“ Tottenham situr í sjöunda sæti deildarinnar. Þremur leikjum liðsins hefur verið frestað á tímabilinu, þar af tveimur vegna kórónuveirunnar. Þá var liðinu dæmdur ósigur í lokaleik riðlakeppninnar í Sambandsdeildinni eftir að fjöldi smita greindist innan liðsins sem varð til þess að liðið féll úr leik. Conte segir að þrátt fyrir að lið deildarinnar glími við mismikinn vanda þá hafi verið eins og allt hafi verið ákveðið fyrirfram á fundinum. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá var þetta fundur þar sem að einhverjir þjálfarar reyndu að tala, og reyndu að fá svör og lausnir, en ég held að allt hafi þegar verið ákveðið.“ „Þegar þú ert með vegg fyrir framan þig þá geturðu talað og beðið um allt sem þú vilt, en það er búið að taka allar ákvarðanir,“ sagði Conte að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira