Hópsmit setur strik í reikninginn hjá Tottenham Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. desember 2021 09:31 Alls hafa sex leikmenn Tottenham skilað jákvæðu kórónuveiruprófi. Tottenham Hotspur FC/Tottenham Hotspur FC via Getty Images Enska knattspyrnuliðið Tottenham Hotspur hefur farið vel af stað undir stjórn Antonio Conte eftir að Ítalinn tók við liðinu fyrir rúmum mánuði síðan. Nú hefur kórónuveiran hins vegar herjað á liðið og það gæti sett strik í reikninginn fyrir mikið leikjaálag desembermánaðar.
Ýmsar heimildir benda til þess að alls hafi sex leikmenn liðsins og tveir úr starsliði Conte skilað jákvæðu kórónuveiruprófi í síðustu viku. Eins og önnur lið í ensku úrvalsdeildinni er þétt leikjaprógramm framundan hjá Lundúnaliðinu, en Tottenham mætir Rennes í mikilvægum leik í Sambandsdeild Evrópu næsta fimmtudag. Tottenham er þar með bakið upp við vegg og þarf á sigri að halda til að tryggja sig upp úr riðlinum. Tottenham leikur einnig gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni næsta sunnudag, áður en liðið mætir Leicester og Liverpool í næstu viku. Leikmenn og starfsfólk liðsins þurfa að gangast undir PCR próf aftur seinna í dag og þeir sem greinast jákvæðir þurfa að fara í tíu daga einangrun samkvæmt sóttvarnarreglum í Bretlandi. Í gær staðfesti enska úrvalsdeildin 12 smit meðal leikmanna og starfsfólks liðanna, en alls voru tekin 3.154 próf.
Enski boltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjá meira