Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Yfirleitt upp úr klukkan sjö á virku dögunum og milli átta og níu um helgar. Opna augun og teygi úr mér. Þó ekki jafn tignarlega og læðan okkar hún Kittý.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Þegar ég hef skriðið á fætur þá er það alltaf góður lýsissopi sem opnar daginn ásamt seglinum á ísskápnum sem skartar mynd af Bill Murray segja: „You're Awesome!". Ekki lýgur minn maður, eða hvað? Alla vega fallega sagt af honum, nú eða góðlátlegt grín.
Banani og vatnsglas fylgir yfirleitt í kjölfarið. Það er mitt morgunfóður, ekki flókið.
Og alveg satt, ég byrjaði ekki að drekka kaffi fyrr en ég varð 49 ára, já og það var víst á síðasta ári. Þannig að það eru einhver þroskamerki í gangi, en um það má sjálfsagt deila.“
Áttu þér uppáhalds fótboltalið?
„Já, og það fleiri en eitt. Hér heima hef ég sterkustu taugarnar til Aftureldingar, HK og KF, sem áður hét KS. Við höfum undanfarin tuttugu ár eða svo búið í Mosó og krakkarnir mínir spilað og æft með Aftureldingu og fjölskyldan verið nokkuð virk í kringum félagið.
Ég var lengi leikmaður og þjálfari hjá HK, sem er ásamt hinu goðsagnarkennda félagi, ÍK, mín æsku- og uppeldislið. Síðan er ég stoltur Siglfirðingur og var fenginn til að spila og þjálfa þar tvö sumur og hljóp hressilega af mér hornin á þeim tíma, ef ég man rétt.
Svo er það YNWA, Liverpool, alltaf! Bestir þegar ég var gutti og horfði á þá í svarthvítu litlu Finlux túbusjónvarpi með pabba, og eru það enn, eftir „smá" millibilsástand.
Annars reyni ég að hreyfa mig reglulega, ýta við gömlu íþróttagenunum með einhverjum hætti flesta daga. World Class, boltaleikir, sund, göngur og fleira sem gefur nauðsynlega líkamlega og andlega næringu.
Hef verið í skemmtilegum félagsskap í Mosó í kringum ræktina þar í um fimmtán ár, UMFUS, ungmennafélag ungra sveina. Þar er markmiðið að menn endist lengur á dansgólfinu en aðrir!“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Það er ýmislegt í gangi, spennandi og skemmtilegt, eins og er nú yfirleitt í þessu líflega umhverfi markaðsmála. Á þessum tíma árs eru margir af okkar samstarfsaðilum að vinna í áætlunum fyrir komandi ár. Þar erum við líka, að reyna að rýna eitthvað inn í framtíðina, kortleggja hana.
Höfum verið lánsöm að verkefnaflóran hefur verið að aukast síðustu mánuði og misseri. Bæði gagnvart aðilum sem eru að auglýsa á Íslandi og líka á erlendri grundu.
Birtingahúsið kynnti á árinu spennandi nýjungar og tækifæri fyrir okkar viðsemjendur. Munum kappkosta að bæta þar enn frekar við á nýju ári. Erum meðal annars að vinna í ákveðinni framþróun í samstarfi við okkar alþjóðlega samstarfsaðila, Dentsu Aegis Network, sem er eitt öflugasta óháða birtingafélag í heimi. Verður gaman að fá að kynna það og þróa áfram með okkar viðskiptavinum.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég reyni að kortleggja vinnudaginn eins mikið og mögulegt er. Forgangsraða verkefnum miðað við mikilvægi þann daginn eða næstu daga. Skiptir miklu enda oft margir boltar í gangi í einu. Þá er líka gott að hafa góðan sveigjanleika og frábært samstarfsfólk.
Reyni svo að hafa fundi þétt á milli ef það er hægt, ekki dreifa þeim yfir daginn eða vikuna. Helst funda þá fyrri hluta dags. Menn eiga það til að funda of mikið og vera of mörg á fundum.
Þá erum við eins og margir aðrir að nota fjarfundi og ýmis samskiptakerfi til að halda utan um verkefni, ferla og nýtingu á tíma. Menn eru að reyna að feta hinn gullna meðalveg í þessu eins og öðru.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Það er frekar stutt síðan að ég fór að reyna að temja mér betri og reglubundnari svefnvenjur.
Sofnaði hér áður vel eftir miðnætti en reyni nú að vera kominn í draumalandið fyrir miðnætti.
Byrjaður að venja mig á að eiga einn til tvo klukkutíma fyrir lestur góðrar bókar eða hlustun á hlaðvarp fyrir háttinn. Slíkt hefur klárlega bætt svefninn sem er víst grunnurinn fyrir allt hitt.“