Þétt dagskrá á Þingi Hringborðs Norðurslóða í Hörpu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. október 2021 11:46 Naaja Nathanielsen ráðherra kynnti stefnu nýrrar ríkisstjórnar Grænlands og svaraði spurningum fyrir hönd nýs forsætisráðherra Múte B. Egede. Vísir/Egill Þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle hófst í Hörpu í morgun klukkan tíu með fjölþættum málstofum um ýmis efni. Setningarfundur þingsins verður svo klukkan 13.
Þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle er fyrsti stóri alþjóðlegi viðburðurinn um málefni Norðurslóða síðan heimsfaraldurinn hófst. Yfir 100 málstofur með fleiri en 400 ræðumönnum eru á dagskrá þingsins. Leiðtogar þjóða, fyrirtækja, umhverfissamtaka, vísindastofnana o.fl. munu flytja ræður í Hörpunni. Hér mun Norðurslóðasamfélagið koma saman í fyrsta sinn síðan forsetar Bandaríkjanna og Rússlands ræddu ítarlega um málefni Norðurslóða á leiðtogafundi sínum í Genf í sumar. Hin nýja staða Norðurslóða á vettvangi heimsmálanna mun því vera ofarlega á baugi hinna fjölmörgu viðburða þingsins. Frá Hörpu í morgun.Vísir/Egill Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir flytur ræðu við upphaf setningarfundar þingsins. Ný stefna Evrópusambandsins í málefnum Norðurslóða verður á setningarfundinum kynnt af Virginijus Sinkevicius sem er ráðherra Evrópusambandsins um málefni umhverfis, hafs og fiskveiða. Tveir öldungardeildarþingmenn frá Bandaríkjunum, Lisa Murkowski frá Alaska og Sheldon Whitehouse frá Rhode Island, munu einnig á setningarfundinum fjalla um málefni Norðurslóða og loftslagsmál. Einnig mun ný forystusveit Bandaríkjanna í málefnum Norðurslóða, þar á meðal David Balton stjórnandi hinnar nýju Norðurslóðaskrifstofu Hvíta Hússins í Washington D.C., og Mike Sfraga nýr formaður Bandaríska Norðurslóðavísindaráðsins kynna áherslur Biden stjórnarinnar varðandi framtíð Norðurslóða og ræða samskipti Bandaríkjanna við Kína og Rússland í þessum heimshluta. Naaja Nathanielsen, ráðherra, mun kynna stefnu hinnar nýju ríkisstjórnar Grænlands og svara spurningum fyrir hönd hins nýja forsætisráðherra, Múte B. Egede. Málefni Grænlands verða mjög til umfjöllunar en í málstofum verður fjallað sérstaklega um nýlega skýrslu um stöðu Íslands og Grænlands á Nýjum Norðurslóðum. Einnig verður rætt um vaxandi vægi Grænlands á alþjóðavettvangi og um stjórnskipulega framtíð landsins. Á laugardagskvöld lýkur þinginu með svokölluðu Grænlandskvöldi þar sem koma fram grænlenskir listamenn og veitingar og menning Grænlands verða kynnt af Kommuneqarfik Sermersooq, stærsta sveitarfélag heims. Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands flytur ræðu á setningarfundinum. Ræðunnar er beðið með nokkurri eftirvæntingu. Hún verður síðasta stefnumótandi ræðan sem forsætisráðherra Skotlands flytur í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Glasgow í byrjun nóvember. Þing Hringborðs Norðurslóða er af mörgum þátttakendum nýtt sem undirbúningur undir COP26 fundinn í Glasgow. Fólk á leið í hraðpróf í Hörpu.Vísir/Egill Utanríkisráðherra Danmerkur, Jeppe Kofod, mun fjalla um stöðu danska konungdæmisins á Norðurslóðum og aðstoðarutanríkisráðherra S-Kóreu, Jongmoon Choi, mun flytja ræðu um þátttöku Kóreu á Norðurslóðum. Bárður Á Steig Nielsen lögmaður Færeyja flytur ræðu um stöðu Færeyja á nýjum Norðurslóðum. Allir ofangreindir leiðtogar munu svara spurningum þátttakenda úr sal í kjölfar ávarpa sinna. Þá munu Valery Falkov, ráðherra vísinda í Rússlandi, og Nikolay Korchunov formaður fastafulltrúa Norðurskautsráðsins flytja síðar í dag ávörp um stefnu Rússlands sem formennskulands í Norðurskautsráðinu. Rússland tók við formennsku af Íslandi á ráðherrafundi ráðsins í Reykjavík í maí síðastliðnum. Ísklumpur bráðnar fyrir utan Hörpu. Táknrænt verk.Vísir/Egill Meðal annarra atburða á dagskrá þingsins verður athöfn á morgun. Þá verða afhent verðlaun sem kennd eru við Frederik Paulsen sem um áratuga skeið hefur verið stuðningsmaður vísindarannsókna og samvinnu á heimskautasvæðum jarðar. Stofnað var til verðlaunanna í samvinnu Hringborðs Norðurslóða og Háskóla Norðurslóða. Þeim er ætlað að vera viðurkenning fyrir rannsóknir og frumkvæði sem hafa að meginmarkmiði að bregðast við þeirri vá sem steðjar að vegna loftslagsbreytinga. Verðlaunaupphæðin nemur um 15 milljónum króna. Meðal annarra dagskrárefna verður umfjöllun um framtíð fjárfestinga á Norðurslóðum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tekur þátt í þeim umræðum ásamt Scott Minerd fjárfestingastjóra Guggenheim Partners, Hugh Short forstjóra Pt. Capital, sem meðal annars er aðaleigandi Nova og Kea hótela, og Benedikt Gíslasyni bankastjóra Arion banka. Fjallað verður sérstaklega um möguleikann á því að stofna til samstarfs um fjárfestingar á Norðurslóðum og jafnvel um stofnun á sérstökum sjóði sem yrði helgaður Norðurslóðum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands frá 1996 til 2016, verður í eldlínunni sem fyrr á Arctic Circle.Vísir/Vilhelm Sendiherra Frakklands um málefni heimskautanna, Olivier Poivre d‘Arvor og Michael Mann sendiherra Evrópusambandsins munu ræða samlegðaráhrif af þeirri stefnumótun um málefni heimskautanna sem hefur átt sér stað annars vegar af hálfu franskra stjórnvalda og hins vegar af hálfu Evrópusambandins. Skipuleggjendur og leiðtogar stærsta vísindaleiðangurs á Norðurslóðum MOSAiC munu kynna frumniðurstöður hins sögulega leiðangurs. Tímasetningin hefur gríðarlega þýðingu þar sem hin dramatíska skýrsla IPCC hefur nýlega verið kynnt og einungis tvær vikur þar til loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna COP26 verður haldin í Glasgow. Forsætisráðherra Íslands býður til móttöku ásamt utanríkisráðherra Íslands í kvöld og annað kvöld verður haldin móttaka til heiðurs verðlaunahafa Frederik Paulsen verðlaunanna. Lokadaginn 16. október verður haldið Grænlandskvöld opið öllum þátttakendum. Hringborð Norðurslóða – Arctic Circle er alþjóðlegur vettvangur þar sem saman koma pólitískir leiðtogar, stjórnendur fyrirtækja, sérfræðingar í umhverfismálum, fulltrúar frumbyggja, frumkvöðlar, vísindamenn og fleiri aðilar víðsvegar að úr heiminum. Áætlað er að rúmlega 1200 þátttakendur, frá yfir 50 löndum munu sækja þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle í Hörpunni. Það verður því fyrsta stóra fjölþátta alþjóðlega samkoman í Evrópu síðan heimsfaraldurinn hófst.
Harpa Norðurslóðir Hringborð norðurslóða Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Sjá meira