Grínuðust með meinta öfgastefnu Ásmundar Einars Snorri Másson skrifar 24. september 2021 18:02 Stjörnurnar Rob and Romesh, sem stýra vinsælum þætti á Sky One. Tvímenningarnir grínuðust með stjórnmálaskoðanir Ásmundar Einar áður en hann lagði þá að velli í trukkadrætti. Þar með hefndi hann að sögn fyrir IceSave og þorskastríðin... þótt fyrr hefði verið. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Hvað er málið með þennan frambjóðanda sem er mættur hérna til skora okkur á hólm, hugsuðu bresku stjörnurnar...
Ásmundur Einar Daðason, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík norður, telur afrek sitt í trukkadrætti á Grandanum í Reykjavík í dag merki um sterkar líkur á að hann drífi inn á þing í sínu kjördæmi á morgun. Ráðherrann atti kappi við heimsfræga breska grínista, Rob Becket og Romesh Ranganathan, sem ferðast um heiminn og keppa í alls konar aflraunum. Vanalega láta þeir duga að keppast innbyrðis en nú fengu þeir íslenskan andstæðing að borðinu. „Ef ég næ þessu ekki yfir línuna mun ég biðja ykkur um að birta þetta eftir kosningar en ekki fyrir,“ sagði Ásmundur Einar við fréttastofu áður en leikar hófust. Ef bíllinn fer yfir línuna ferð þú inn í Reykjavík norður? „Þá skulum við vona að það sé merki um að ég sé líka að fara yfir línuna.“ Hvort ertu stressaðri fyrir bílnum eða kosningum? „Ég er stressaðastur fyrir því ef ég kem ekki bílnum yfir línuna, þá er ég stressaðastur yfir þessari frétt hérna.“ Allt kom fyrir ekki og Ásmundur leysti verkefnið með glæsibrag. Grínistarnir voru því réttilega stressaðir í aðdraganda átakanna og sögðu í því sambandi að ekki bætti úr skák að hafa fjölmiðla og fjölda myndavéla viðstadda. En voru þeir fúsir að rétta frambjóðanda í fallhættu hjálparhönd? „Ja, ég þyrfti að sjá stefnuna hans áður. Ég veit ekki betur en að hann gæti verið alger brjálæðingur.,“ sagði Rob í samtali við fréttastofu. Fréttamaður upplýsti tvímenningana um að hér væri á ferð hinn mesti miðjumaður. Já, það segja þeir allir, sagði Rob, og Romesh hélt áfram: „Það er það sem þeir segja allir í byrjun og svo taka þeir upp algera öfgastefnu. Ég hef séð það gerast áður, þú skalt ekki efast um það.“ Rob svaraði kollega sínum: „Nei, róum okkur nú. Hann er ekki þannig gaur,“ sagði hann um Ásmund sinn. Þremenningarnir enduðu sáttir og stóri dagurinn er á morgun.Vísir/Vilhelm Ásmundur bar sigur úr býtum og vildi ekki segja af eða á um það hvort það þýddi endilega að hann ætti sigur vísan á morgun: „Við erum búin að hefna fyrir IceSave og þorskastríðin held ég. Ég komst yfir þessa línu. Nú er það bara línan á morgun. Það er í höndum þjóðarinnar, ekki mín.“ Hann hafði í það minnsta ekki tryggt sér atkvæði Brimar Rúnar Hrannar sem mætti til að hitta Rob og Romesh, sem hún hefur dálæti á í sjónvarpinu. „Hann kemst nálægt því en nei. Ég er búin að ráðstafa mínu atkvæði. En þetta er gott plögg svona rétt fyrir kosningar,“ sagði Brim.
Alþingiskosningar 2021 Framsóknarflokkurinn Reykjavíkurkjördæmi norður Reykjavík Íslandsvinir Tengdar fréttir Ásmundur Einar dró trukk á eftir sér fyrir breskan sjónvarpsþátt Í dag voru tökur úti á Granda fyrir þættina Rob and Romesh Vs. Þeir Rob Becket og Romesh Ranganathan voru þar að leysa ýmsar þrautir og þeim til aðstoðar var kraftajötuninn Magnús Ver. 24. september 2021 16:02 Óregla og áfengi á heimilinu og gekk í sjö grunnskóla á átta árum Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. 23. september 2021 11:16 Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar. 22. september 2021 21:00 Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira
Ásmundur Einar dró trukk á eftir sér fyrir breskan sjónvarpsþátt Í dag voru tökur úti á Granda fyrir þættina Rob and Romesh Vs. Þeir Rob Becket og Romesh Ranganathan voru þar að leysa ýmsar þrautir og þeim til aðstoðar var kraftajötuninn Magnús Ver. 24. september 2021 16:02
Óregla og áfengi á heimilinu og gekk í sjö grunnskóla á átta árum Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. 23. september 2021 11:16
Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar. 22. september 2021 21:00