Viðskipti innlent

Hafa samið um leigu á fjórum vélum til við­bótar

Atli Ísleifsson skrifar
Flugfélagið segist langt á veg komið í viðræðum um leigu á tíundu vél sinni.
Flugfélagið segist langt á veg komið í viðræðum um leigu á tíundu vél sinni. Play

Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann GECAS um leigu á þremur A320neo flugvélum og einni A321NX flugvél.

Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að vélarnar verði afhentar frá hausti 2022 til vors 2023.  Áður hafi Play greint frá undirritun viljayfirlýsingar við GECAS frá því í ágúst.

„Í ágúst undirritaði PLAY einnig viljayfirlýsingu við annan alþjóðlegan flugvélaleigusala um  leigu á tveimur A320neo flugvélum sem verða afhentar vorið 2022. Þessar ráðstafanir stækka flota PLAY úr þremur flugvélum í níu fyrir sumarið 2023. Þá er félagið langt að veg komið í viðræðum um leigu á tíundu flugvélinni,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Birgi Jónssyni forstjóra að langtímamarkmið félagsins sé að gera Play að leiðandi flugfélagi og að samningurinn við GECAS sé enn eitt skref í þá átt. „Við erum meðvitað að taka ákvarðanir með umhverfissjónarmið í huga og er val á þessum flugvélum til marks um það,“ er haft eftir Birgi.


Tengdar fréttir

Play tekur á móti nýrri far­þega­þotu í næstu viku

Flugfélagið Play mun taka á móti þriðju Airbus A321neo farþegaþotu sinni í næstu viku. Þessa daganna er unnið að því að klára undirbúning áður en flugvélin kemur til Íslands og reikna stjórnendur með að taka hana til notkunar snemma í ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×