Benzema og Vinícius sáu til þess að Real heldur toppsætinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. september 2021 21:05 Karim Benzema. Getty/David S. Bustamante Real Madrid vann dramatískan 2-1 útisigur á Valencia í kvöld. Liðið var 1-0 undir þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Topplið La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, mættust á Mestalla-vellinum í kvöld. Fyrri hálfleikur var markalaus en það voru heimamenn í Valencia sem komust yfir um miðbik síðari hálfleiks. Hugo Duro var þá fyrstur að átta sig er boltinn var laus innan vítateigs og kom knettinum yfir línuna. Staðan var 1-0 Valencia í vil allt fram á 86. mínútu leiksins. Karim Benzema gaf þá á Vinícius Jr. sem skaut að marki. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni áður en hann söng í netinu. Gestirnir komust yfir þremur mínútum síðar þegar Vinícius gaf fyrir markið og Benzema skallaði knöttinn í netið. Staðan orðin 2-1 og reyndust það lokatölur leiksins. 86': Benzema assists Vinicius Jr.'s goal 88': Vinicius Jr. assists Benzema's goal Benzema and Vinicius Jr. both score to complete the comeback for Real Madrid and beat Valencia 2-1 pic.twitter.com/cgLOOVTdRV— B/R Football (@brfootball) September 19, 2021 Real er á toppi deildarinnar með fjóra sigra og eitt jafntefli í fyrstu fimm umferðum deildarinnar. Valencia er í 3. sæti en þetta var fyrsta tap þeirra á leiktíðinni. Spænski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti