Gaf sig fram eftir 29 ár á flótta Atli Ísleifsson skrifar 15. september 2021 08:43 Hinn 64 ára Desic hafði sofið á ströndinni síðustu vikurnar þar til að hann ákvað að líf á bak við lás og slá væri betri tilhugsun en að vera heimilislaus. Lögregla í NSW/Getty Maður sem flúði úr áströlsku fangelsi fyrir nærri þrjátíu árum hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hann missti heimili sitt í kjölfar faraldurs kórónuveirunnar.
Darko Desic tókst að flýja úr Grafton-fangelsinu í Nýju Suður-Wales í byrjun ágúst 1992 þar sem hann notaðist járnsagarblaði og klippum. Desic hafði afplánað þrettán mánuði af þriggja og hálfs árs dómi sem hann hlaut fyrir kannabisræktun þegar hann flúði. Eftir víðtæka lögreglu tókst ekki að hafa hendur í hári Desic. Í frétt ABC segir frá því að heimildarmenn með tengsl við rannsóknina segja Desic hafa flúið til norðurstrandar Ástralíu þar sem hann hafi starfað sem iðnaðarmaður og þúsundþjalasmiður síðustu árin. Hafi hann búið í bænum Avalon en átt í vandræðum með að borga fyrir leigu eftir að verkefnum fækkaði vegna faraldurs kórónuveirunnar. Hinn 64 ára Desic hafði sofið á ströndinni síðustu vikurnar þar til að hann hafi ákveðið að líf á bakvið lás og slá væri betri tilhugsun en að vera heimilislaus. Hann hafi því ákveðið að gefa sig fram við lögreglu í bænum Dee Why síðastliðinn sunnudag. Desic hefur nú verið ákærður fyrir flóttann og mun mæta fyrir dómara síðar í þessum mánuði.
Ástralía Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Heitir hættulegir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Fleiri fréttir Heitir hættulegir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Sjá meira