Solskjær: Getum ekki farið úr körfubolta í ruðning Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2021 11:30 Ole Gunnar Solskjær er undrandi á breytingunni á dómgæslunni í ensku úrvalsdeildinni. getty/Andrew Matthews Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United, finnst dómarar í ensku úrvalsdeildinni leyfa full mikið miðað við síðasta tímabil.
Solskjær var ósáttur við að United skildi ekki hafa fengið aukaspyrnu í aðdraganda marks Southampton í 1-1 jafntefli liðanna í gær. Norðmaðurinn taldi að Jack Stephens hefði brotið á Bruno Fernandes en Craig Pawson, dómari leiksins, dæmdi ekkert. „Ef þetta er leiðin sem þeir vilja fara verða meiðsli. Vonandi er hægt að finna einhvern milliveg,“ sagði Solskjær eftir leik. „Þetta er brot. Hann fer beint í gegnum Bruno, með mjöðmina og höndina umhverfis hann.“ Solskjær botnar lítið í breytingunni á dómgæslunni frá síðasta tímabili þegar minna var leyft. „Ég er ekki áhyggjufullur en það þarf að skoða þetta því við getum ekki farið úr einum öfgum yfir í aðrar, úr körfubolta í ruðning eins og þetta er núna,“ sagði Solskjær sem tók þó fram að hann væri ánægður með að dómarar ensku úrvalsdeildarinnar leyfðu meira en áður. Solskjær er ekki eini stjórinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur furðað sig á breytingunni á dómgæslunni en Jürgen Klopp gerði það einnig eftir 2-0 sigur Liverpool á Burnley á laugardaginn. United er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn Sport Þrjátíu leikja bann: Hljóp reiður inn á og í áttina að Elíasi Fótbolti Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Sport Þrír látnir í skotárás á íshokkíleik: „Hugsanlega vegna fjölskylduerja“ Sport Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið Íslenski boltinn Komu upp um meira svindl hjá Kanada í krullunni Sport Jutta Leerdam og Jordan Stolz breyttu orðrómi í sannleika Sport „Ég skammast mín“ Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport Fast skotið í Extraleikunum: Nablinn treysti á tæknina og kálfana Sport Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Sjá meira