Krefjast rannsóknar á notkun ráðherra á samskiptamiðlum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. ágúst 2021 07:46 James Bethell er meðal þeirra ráðherra sem hafa gerst sekir um að nota einkapóstinn til að sinna opinberum erindagjörðum. Mynd/Breska þingið Breski Verkamannaflokkurinn hefur kallað eftir rannsókn á notkun ráðherra á samskiptaforritum á borð við WhatsApp eftir að í ljós kom að undirráðherra í heilbrigðisráðuneytinu skipti um síma áður en rannsókn hófst á samskiptum hans.
James Bethell er meðal þeirra ráðherra sem eru til rannsóknar vegna grunsemda um misferli við úthlutun samninga vegna Covid-19 prófa og hlífðarfatnaðar fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Þáttur Bethell snýst um 85 milljón punda samning við Abingdon Health vegna mótefnamælinga. Þess er nú freistað að fá samskipti Bethell afhent frá farsímafyrirtækinu hans, eftir að í ljós kom að hann skipti um síma í byrjun árs. Á sama tíma og stjórnvöldum ber að varðveita öll samskipti og gögn hafa ráðherrar verið staðnir að því að nota einkapóst og ýmis samskiptaforrit til að eiga samskipti um opinber málefni, sem gagnrýnendur segja afar varhugavert. Segja þeir samskipti um óformlegar boðleiðir leiða til ógegnsæis og geta valdið því að öll gögn skili sér ekki þegar óskað er eftir upplýsingum á grundvelli upplýsingalaga. Bethell er einnig til rannsóknar fyrir að hafa notað einkapóstinn sinn til að sinna opinberum málum en sú rannsókn hófst eftir að í ljós kom að yfirmaður hans, fyrrverandi heilbrigðisráðherrann Matt Hancock, hafi gerst sekur um sömu háttsemi.
Bretland Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira