Telur Liverpool þurfa að bæta við sig leikmönnum til að keppa um titilinn Arnar Geir Halldórsson skrifar 1. ágúst 2021 15:00 Jamie Carragher vísir/getty Liverpool goðsögnin Jamie Carragher kveðst ekki sannfærður um að núverandi leikmannahópur Liverpool sé nógu sterkur til að vinna ensku úrvalsdeildina sem hefst um miðjan mánuðinn.
Liverpool hefur aðeins keypt einn leikmann í sumar en það er franski varnarmaðurinn Ibrahima Konate sem kom frá RB Leipzig. Ekki er útlit fyrir að Jurgen Klopp ætli sér að vera stórtækur á leikmannamarkaðnum það sem eftir lifir sumars og telur Carragher að það gæti komið í veg fyrir að liðið keppi við ríkjandi meistara Man City um titilinn. „Það þarf ekki marga leikmenn en ég tel liðið þurfa að fá meiri gæði í hópinn,“ segir Carragher. „Ef við fáum ekki fleiri leikmenn gæti verið erfitt að velta Man City af stalli sínum. Við skulum ekki gleyma Chelsea sem eru Evrópumeistarar og Man Utd sem hefur gert vel á markaðnum með því að ná í Varane og Sancho.“ „Ég myndi vilja sjá leikmenn sem færir liðinu mörk, sama hvort það sé af miðjunni eða einhver í sóknarlínuna,“ segir Carragher. Liverpool átti ekki góða titilvörn á síðustu leiktíð en hafnaði þó í 3.sæti deildarinnar, á eftir Manchester liðunum tveimur. „Ég er pínu smeykur eftir síðasta tímabil hjá Liverpool, hvort það sé nóg af mörkum í liðinu til að fara og vinna titilinn. Ég geri kröfu á að Mane muni eiga gott tímabil. Hann var ekki upp á sitt besta í fyrra en hefur litið mjög vel út á undirbúningstímabilinu. Vonandi getur hann verið maðurinn sem færir liðinu þessi mörk sem ég tel þurfa,“ segir Carragher. Liverpool hefur leik í ensku úrvalsdeildinni þann 14.ágúst næstkomandi þegar liðið heimsækir nýliða Norwich.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira