Elskar að djamma en fær ekki að djamma Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 30. júlí 2021 16:01 Álfgrímur ætlaði að gefa lagið út í tilefni af því að Covid væri búið! Svo reyndist það alls ekki búið... aðsend Álfgrímur Aðalsteinsson hefur gert gott mót á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið. Þar er hann með um 11 þúsund fylgjendur og hafa vinsældir hans farið sívaxandi undanfarið. Hann hefur nú gefið út lag, sérstaklega tileinkað djamminu, sem hann fær þó ekki að stunda af eins miklum móði og hann hefði sjálfur viljað. „
Ég hef stundum kvartað og kveinað yfir djammbanninu við fylgjendur mína á TikTok sem hafa margir tengt við það erfiði,“ segir Álfgrímur í samtali við Vísi. Hann kallar sig Elfgrime á miðlinum. Í morgun gaf hann út djammlagið, sem ber þann afdráttarlausa titil: Ég elska að DJAMMA. „Ég ákvað að búa til djammlag í tilefni af því að Covid væri búið. Svo er nú frekar súrt að akkúrat þegar lagið kemur út er nýbúið að loka aftur fyrir djammið, Covid greinilega alls staðar alls ekkert búið og allir að bugast,“ segir hann. „En vonandi veitir þetta fólki samt einhverja gleði og tilhlökkun. Og það má jú djamma enn þá en bara til 12. “ Lagið samdi Álfgrímur með bróður sínum, raftónlistarmanninum Árna Húma. Salka Valsdóttir tónlistarkona tók lagið upp og hljóðblandaði fyrir Álfgrím.
Tónlist Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samfélagsmiðlar Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Fleiri fréttir Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira