MacKenzie Scott lætur aðra 2,7 milljarða dala af hendi rakna Atli Ísleifsson skrifar 16. júní 2021 07:30 Jeff Bezos og MacKenzie Scott skildu árið 2019. Getty MacKenzie Scott, fyrrverandi eiginkona Amazon-stofnandans Jeff Bezos og ein ríkasta kona heims, hefur látið 2,7 milljarða Bandaríkjadala af hendi rakna til fjölskylduhjálparstofnana og styrktarsjóða. Það samsvarar um 328 milljörðum íslenskra króna.
Upphæðin kemur til viðbótar þeim fjórum milljörðum dala sem hún gaf á síðasta ári. Scott segir frá því í bloggfærslu að hún vilji gefa fjármunina til þeirra sem hafi „sögulega séð verið vanefnum búnir og yfirsést“. Sagði hún að féð yrði látið renna til 286 samtaka sem vinna gegn kynþáttamismunun og stuðla að listum og menntun. Þegar þau Bezos og Scott, sem einnig er rithöfundur, skildu fékk Scott fjögurra prósenta hlut í Amazon, en hún aðstoðaði Bezos við stofnun fyrirtækisins árið 1994. Þrátt fyrir að hafa látið allt þetta fé renna til góðgerðarstarfs er Scott enn 22. á lista yfir ríkasta fólk heims, samkvæmt Forbes.
Bandaríkin Amazon Tengdar fréttir MacKenzie Scott látið fjóra milljarða dala af hendi rakna á fjórum mánuðum MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur látið rúmlega fjóra milljarða Bandaríkjadala af hendi rakna til fjölskylduhjálparstofnana og styrktarsjóða á síðustu fjórum mánuðum. Það samsvarar um 500 milljarða íslenskra króna. 16. desember 2020 08:46 MacKenzie Scott giftist kennara við skóla barna sinna MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur gifst kennaranum Dan Jewett sem kennir við skóla barna Scott og Amazon-stofnandans Jeffs Bezos. 8. mars 2021 11:17 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
MacKenzie Scott látið fjóra milljarða dala af hendi rakna á fjórum mánuðum MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur látið rúmlega fjóra milljarða Bandaríkjadala af hendi rakna til fjölskylduhjálparstofnana og styrktarsjóða á síðustu fjórum mánuðum. Það samsvarar um 500 milljarða íslenskra króna. 16. desember 2020 08:46
MacKenzie Scott giftist kennara við skóla barna sinna MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur gifst kennaranum Dan Jewett sem kennir við skóla barna Scott og Amazon-stofnandans Jeffs Bezos. 8. mars 2021 11:17