Belgar og Englendingar líklegastir til að vinna EM Sindri Sverrisson skrifar 10. júní 2021 10:31 Belgar stefna hátt með Romelu Lukaku í fremstu víglínu. Getty/Sylvain Lefevre Lið Danmerkur er eitt af sex liðum sem yfir 90% líkur eru á að komist áfram í útsláttarkeppnina á Evrópumótinu í fótbolta sem hefst á morgun.
Íþróttatölfræðiveitan Gracenote hefur reiknað út hvaða lið eru líklegust til að vinna EM. Mótið virðist samkvæmt þeim útreikningum vera galopið og ekkert lið með afburðum sigurstranglegast. Belgía, sem er efst á heimslista FIFA, þykir örlítið líklegra en England til að vinna mótið. Gracenote metur sigurlíkur hvorrar þjóðar hæstar allra, eða um 14%. Frakkland (12%), Spánn (10%), Ítalía (9%) og Portúgal (8%) koma næst. Belgar freista þess að vinna sitt fyrsta stórmót og eina stórmótið sem Englendingar hafa unnið var á heimavelli á HM 1966. England verður á heimavelli í sínum riðli á EM, þar sem liðið mætir Króatíu, Skotlandi og Tékklandi, og gæti mögulega einnig leikið á Wembley í 16-liða úrslitum, undanúrslitum og úrslitum. Samkvæmt Gracenote eru mestar líkur á að England og Belgía mætist í úrslitaleik EM, en þó aðeins um 2,9% líkur. Næstmestar líkur eru á að England og Ítalía mætist í úrslitum, eða Danmörk og Belgía. Danir leika á heimavelli í B-riðli, með Belgum, Finnum og Rússum. Gracenote telur yfir 90% líkur á að Danmörk fari áfram úr riðlinum, sem og að Belgar fari upp úr riðlinum. Tölfræðiveitan segir einnig yfirgnæfandi líkur á því að Spánn, England, Holland og Ítalía fari áfram úr sínum riðlum.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Fleiri fréttir Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Sjá meira