Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það, hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég er eiginlega A og B maður í senn.
Yfirleitt vekur yngsta dóttir mín mig um klukkan hálf sjö á morgnanna. Hún er er enn í rimlarúmi, með hljómþýða óperurödd og kallar hátt og snjallt með sinni óaðfinnanlegu raddbeitingu á mig á hverjum morgni svo ég hef eiginlega ekki annarra kosta völ en að vakna.
Í framhaldi röltum við um húsið, leitum að fuglum eða köttum í helstu gluggum og svo fáum við okkur bláber eða Cheerios saman.
Er eiginlega hættur að geta sofið út, en man vel eftir því að geta sofið langt fram á eftirmiðdag um tvítugt. Það væri ekki ónýtt að geta það enn.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Við eigum fjögur ung börn þannig að morgnarnir eru uppfullir af verkefnum og áskorunum og að reyna að para ósamstæða sokka, en einhvern veginn blessast þetta nú alltaf.
Ég er ekki einn af þeim sem fer út að hlaupa, stunda hugleiðslu eða jarðtengi mig á morgnanna.
Kaffibolli er ákveðinn plús en það næst nú ekki alltaf.
En fastur punktur er að fara með yngsta soninn á leikskólann Hagaborg og mér finnst eitthvað vanta í daginn ef ég næ því ekki.“
Þegar að þú varst lítill, hvað ætlaðir þú þá að verða þegar þú yrðir stór?
„Þessu er auðsvarað. Það var mikil og ör þróun í framtíðarstarfsvali mínu fyrstu fimm ár ævinnar.
Mamma segir mér að um þriggja ára aldur hafi ég verið harðákveðinn í því að verða tígrísdýr þegar ég yrði stór. Þegar ruslakarlanir byrjuðu að vera í skærgulum vestum skipti ég hratt og örugglega um starfsvettvang úr frumskóginum og einhverjum misserum síðar ætlaði ég að verða ljósmyndari fyrir National Geographic.
Það varð nú ekkert úr þessari þrenningu. En hver veit hvað síðar verður?“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Það er alltaf handagangur öskjunni í kringum Samtök atvinnulífsins. Kjarasamningarnir eru orðnir um 130 talsins bara á síðustu tveimur árum. Það er meira en einn á viku.
Eitt af verkefnunum þessa dagana er að spjalla við félagsmenn um allt land nú þegar er tekið að rofa til eftir heimsfaraldurinn og bólusetningar farnar að ganga smurt.
Það verður atvinnulífið sem mun draga vagninn í því að vinna bug á atvinnuleysinu og við ætlum okkur að vera öflugir málsvarar til að það gerist sem skjótast, samfélaginu öllu til heilla.
Að sama skapi fer mikill tími í samskipti við nefndir Alþingis enda farið að nálgast þinglok.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Dagatalið mitt í Outlook er málið. Ég vandi mig á fyrir mörgum árum að setja allt inni í dagatal, stórt sem smátt – og úthluta mér verkefnum í gegnum það.
Ég vildi að ég gæti sagt ykkur frá einhverju mjög nútímalegu og nettu verkefnastjórnunartóli, en þetta virkar vel fyrir mig. Kollegar mínir á skrifstofunni gera grín að mér, en ég stend með sjálfum mér í þessu.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Þarna er nefnilega vandinn. Það er ekki gott að vakna alltaf snemma og vera vökuskarfur á sama tíma.
Um helgar stelst ég til þess að fá mér kríu um miðjan daginn og veit fátt betra en að sofna með útvarpið malandi í bakgrunni.“